Sýningin H.f. Útvarp │ Dagurinn sem útvarpið varð að veruleika

Loftskeytastöðin menningarmiðstöð. Brynjólfsgata 5, 107 Reykjavík.
Í ár eru liðin hundrað ár frá fyrstu formlegu útvarpssendingunni hér á landi, en hún fór fram í Loftskeytastöðinni í Reykjavík þann 18. mars 1926 og hófst þá nýr kafli í íslenskri miðlunarsögu.
Facebook event: Exhibition / Sýningin H.f. Útvarp │ Dagurinn sem útvarpið varð að veruleika
Sýningin sem nú er sett upp í Loftskeytastöðinni er ferðalag um fyrstu ár útvarps á Íslandi, áður en Ríkisútvarpið var stofnað. Hún varpar ljósi á tíma þegar einangrun milli byggða var rofin, Ísland tengdist umheiminum og útvarpið festi sig í sessi sem daglegur miðill á íslenskum heimilum.
Saga útvarpsins er bæði saga tækninnar og þeirra tækja sem henni fylgja, en einnig sagan af þeim töfrum sem einkenndu upphaf útvarpsmiðlunar. Í gegnum sýninguna fá gestir að kynnast árdögum útvarpsins, þeim tilraunum sem gerðar voru og framtíðardraumum, hér á eyju lengst norður í úthafi.
Verið velkomin á opnun sýningarinnar miðvikudaginn 18. mars kl. 17:00–19:00 og skálum saman fyrir hundrað ára afmælinu.
Í boði verða léttar veitingar fyrir börn og fullorðna.
Aðgengi fyrir hjólastóla er í húsinu.
Opnunartímar ↓
Safnið er opið fimmtudaga - laugardaga frá kl. 13:00-17:00.
Ókeypis leiðsagnir verða fimtudaga og laugardaga frá kl. 13:00-17:00.
Sýningin stendur frá 18. mars – 11. apríl 2026.
Staðsetning ↓
Loftskeytastöðin menningarmiðstöð.
Brynjólfsgata 5, 107 Reykjavík.
Sýningin H.f. Útvarp │ Dagurinn sem útvarpið varð að veruleikaÍ ár eru liðin hundrað ár frá fyrstu formlegu útvarpssendingunni hér á landi, en hún fór fram í Loftskeytastöðinni í Reykjavík þann 18. mars 1926 og hófst þá nýr kafli í íslenskri miðlunarsögu.Facebook event: Exhibition / Sýningin H.f. Útvarp │ Dagurinn sem útvarpið varð að veruleikaSýningin sem nú er sett upp í Loftskeytastöðinni er ferðalag um fyrstu ár útvarps á Íslandi, áður en Ríkisútvarpið var stofnað. Hún varpar ljósi á tíma þegar einangrun milli byggða var rofin, Ísland tengdist umheiminum og útvarpið festi sig í sessi sem daglegur miðill á íslenskum heimilum.Saga útvarpsins er bæði saga tækninnar og þeirra tækja sem henni fylgja, en einnig sagan af þeim töfrum sem einkenndu upphaf útvarpsmiðlunar. Í gegnum sýninguna fá gestir að kynnast árdögum útvarpsins, þeim tilraunum sem gerðar voru og framtíðardraumum, hér á eyju lengst norður í úthafi.Verið velkomin á opnun sýningarinnar miðvikudaginn 18. mars kl. 17:00–19:00 og skálum saman fyrir hundrað ára afmælinu.Í boði verða léttar veitingar fyrir börn og fullorðna.Aðgengi fyrir hjólastóla er í húsinu.Opnunartímar ↓Safnið er opið fimmtudaga - laugardaga frá kl. 13:00-17:00.Ókeypis leiðsagnir verða fimtudaga og laugardaga frá kl. 13:00-17:00.Sýningin stendur frá 18. mars – 11. apríl 2026.Staðsetning ↓Loftskeytastöðin menningarmiðstöð.Brynjólfsgata 5, 107 Reykjavík.
