Skip to main content

Hugvísindaþing 2026

Hugvísindaþing 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. mars 2026 12:00 til 14. mars 2026 16:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hugvísindaþing 2026 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum ætluðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Meðal þess sem fjallað verður um í ár er „dómstóll götunnar“, sakamál á tímabilinu 1600-1900, skáldkonan Nína Björk Árnadóttir, kvikmyndagerðarmaðurinn Ósvald Knudsen, kosningaréttur, kalda stríðið, vélrænn textalestur, orðatiltæki, hugsandi börn og bækur fyrir börn, seljabúskapur og rímur.

Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, setur þingið í Hátíðasal í Aðalbyggingu föstudaginn 13. mars kl. 12:00 og í kjölfarið flytur Magnús Þorkell Bernharðsson, miðausturlandafræðingur við Williams College í Bandaríkjunum, hátíðarfyrirlestur. Málstofur hefjast kl. 13.15 og fara fram í Árnagarði, Lögbergi, Odda og Veröld. Laugardaginn 14. mars hefjast málstofur kl. 10 og verða allar í Árnagarði. 

Smellið hér til að skoða dagskrá þingsins.

Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Verið velkomin á Hugvísindaþing!

Hugvísindaþing 2026 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. mars.

Hugvísindaþing 2026