Skip to main content

Skortur eða gnægð? Viðaröflun norrænna manna á Grænlandi og áhrif þess á hið daglega líf

Skortur eða gnægð? Viðaröflun norrænna manna á Grænlandi og áhrif þess á hið daglega líf - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. mars 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Fyrirlestrasalur

Skortur eða gnægð? Viðaröflun norrænna manna á Grænlandi og áhrif þess á hið daglega líf

Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur flytur fyrirlestur í Eddu kl. 12 þriðjudaginn 3. mars í tengslum við sýninguna Heimur í orðum. Öll velkomin.

Nánar um efni fyrirlestrarins
Grænland var numið af norrænu fólki á seinni hluta 10. aldar. Ályktanir um viðarskort á Grænlandi á miðöldum eru hluti af hugmyndum manna um óhagstæð náttúruskilyrði sem leiddu til endaloka norrænu byggðanna þar.

Þær hugmyndir byggja hins vegar ekki á rannsóknum á viðarnotkun, eingöngu ályktunum sem dregnar hafa verið út frá rituðum heimildum og nútímaaðstæðum. Það er hins vegar ljóst að þær trjátegundir sem vaxa á Grænlandi hafa ekki getað fullnægt timburþörfum norrænna manna í landinu og þeir hafa því þurft að leita annarra leiða til þess að bæta þann skort upp.

Til þess að meta uppruna viðarins voru viðarsöfn rannsökuð frá fimm norrænum býlum á Grænlandi með það að markmiði að komast að því hvaðan og hvernig Grænlendingar öfluðu viða, hversu háðir þeir voru innflutningi og hversu stórt hlutverk innlent timbur og rekaviður lék í lífi Grænlendinga? Enn fremur verður fjallað um viðargripasöfnin og hvað þau geta sagt okkur um grænlenskt samfélag og daglegt líf á miðöldum.

Skortur eða gnægð? Viðaröflun norrænna manna á Grænlandi og áhrif þess á hið daglega líf Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur flytur fyrirlestur í Eddu kl. 12 þriðjudaginn 3. mars í tengslum við sýninguna Heimur í orðum. Öll velkomin.

Skortur eða gnægð? Viðaröflun norrænna manna á Grænlandi og áhrif þess á hið daglega líf