Stöður á sviði fjármála, reikningshalds og greininga 66°N 66°N og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins gegnum starfsþjálfun. Helstu verkefni: Ýmis verkefni varðandi sjálfbærni Aðstoð við samstarfsverkefni Aðstoða starfsmenn vörustýringar og framleiðslusviðs við greiningar og framsetningu gagna Aðstoð við gámasendingar Önnur tifallandi verkefni Hæfniskröfur: Hæfni í mannlegum samskiptum Jákvæðni Stundvísi Heiðarleiki Nákvæmni Tölugleggni Arion Arion banki hf. og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi Arion banka í gegnum starfsþjálfun. Arion banki veitir alhliða fjármálaþjónustu til fyrirtækja og einstaklinga með það að markmiði að skapa verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, hluthöfum, samstarfsaðilum og samfélaginu öllu til góða. Bankinn sinnir eftirliti vegna peningaþvættis en markmið laga um peningaþvætti er að bankinn þekki nægjanleg deili á viðskiptavinum og skilji starfsemi þeirra og tilkynni til þar til bærra yfirvalda ef grunur vaknar um ólögmæta starfsemi. Viðkomandi myndi starfa innan eininga sem sinna eftirliti af þessu tagi en ekki er þörf á sérstakri þekkingu á peningaþvættislöggjöfinni. Helstu verkefni: Gagnavinnsla úr kerfum bankans til að auka yfirsýn og bæta eftirlit svo betur megi leggja heildstætt mat á greiðsluhegðun viðskiptavina. Hæfniskröfur: Þekking á fjármálum fyrirtækja. Þekking og geta til að vinna úr gögnum og þ.a.l. þekking á helstu forritum á borð við Excel og PowerBI Greiningarfærni og öguð vinnubrögð Carbfix We are looking for an enthusiastic summer Intern to join our team, focusing on financial modeling for climate-related projects and service offerings. This internship will provide valuable hands-on experience in the intersection of finance, sustainability, and environmental impact, allowing you to contribute to key projects in the growing climate sector. The ideal candidate will have strong analytical skills, an interest in climate solutions, and a desire to apply financial modeling techniques to real-world projects. Key Responsibilities: Financial Modeling: Assist in developing financial models for various climate projects, including renewable energy, CO2 reduction, and sustainability initiatives. Data Analysis: Collect and analyze financial data related to climate projects, helping to assess project viability, investment returns, and risk factors. Forecasting & Budgeting: Support the creation of financial forecasts and budgets for climate-related services, ensuring accurate financial projections for internal and client use. Scenario Analysis: Conduct sensitivity analysis and scenario planning to evaluate the financial performance of different project models under varying conditions. Reporting: Assist in preparing detailed financial reports and presentations, summarizing the results of financial analyses and project projections for stakeholders. Market Research: Conduct research on market trends, regulatory changes, and financing options for climate projects to help inform financial strategies and models. Collaboration: Work closely with internal teams to understand key project drivers and ensure financial models align with project goals and objectives. Qualifications and Skills: Education: Currently pursuing an MS degree in Finance, Economics, Environmental Science, Business, or a related field. Analytical Skills: Strong quantitative and analytical skills, with the ability to analyze complex data sets and develop insights. Financial Modeling: Experience or coursework related to financial modeling, budgeting, or forecasting (Excel proficiency required). Attention to Detail: Ability to work with precision and accuracy in developing financial models and reports. Communication Skills: Strong written and verbal communication skills, with the ability to present complex financial data in a clear and concise manner. Team Player: Ability to collaborate effectively with diverse teams and stakeholders. Software Proficiency: Advanced proficiency in Microsoft Excel (experience with financial modeling tools is a plus), knowledge of other financial software or analysis tools is advantageous. Interest in Sustainability: A genuine interest in climate change solutions, renewable energy, and sustainability. Coca cola á Íslandi - Fjármálasvið Frábært tækifæri til þess að taka þátt í fjölbreyttum fjármálatengdum verkefnum í alþjóðlegu fyrirtæki. Helstu verkefni: Undirbúningur og þátttaka í áætlanagerð Greiningar Samræðming gagna Önnur fjármálatengd verkefni Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2025. Coca-Cola á Íslandi - Sölusvið Coca-Cola á Íslandi í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi sölusviðs félagsins í gegnum starfsþjálfun. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks. Sjálfbærnistefnan okkar er metnaðarfull og stikar leiðina að betra samfélagi. Á sölusviði Coca-Cola á Íslandi gefst starfsnemum kostur á að kynnast fjölbreyttum verkefnum á sölusviði í alþjóðlegu umhverfi. Helstu verkefni: Skráning gagna og skýrslugerð Geining gagna í sölu og þjónustu Innleiðing nýrra verkferla Halda utanum lykilmælikvarða Ýmis önnur tilfallandi störf á sölusviði Hæfniskröfur Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Greiningarhæfni Lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðhorf Góð hæfni í mannlegum samskiptum Coca cola á Íslandi - Vörustjórnun Frábært tækifæri til þess að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum í alþjóðlegu fyrirtæki. Helstu verkefni: Greiningarvinna Skráningar Uppfærsla á skýrslum Vinnulýsingar og verklagsreglur Crowberry Capital Crowberry Capital og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum að kynnast starfsemi félagsins. Hjá Crowberry starfa 6 aðilar og mun neminn koma til með að starfa náið með öllum í teyminu og fá tækifæri til að starfa í alþjóðlegu fjárfestinga og sprota umhverfi frá Íslandi. Crowberry Capital er vísisjóður en það er tegund fjárfestingasjóða sem fjárfestir í nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum (þ.e. sprotafyrirtæki eða startups) á pre-seed og seed stigum. Crowberry er með yfir $150 milljónir í eignastýringu í tveimur sjóðum og fjárfestir á öllum Norðurlöndunum. Hingað til hefur Crowberry fjárfest í yfir 20 fyrirtækjum m.a. í fjártækni, heilbrigðistækni, B2B SaaS lausnir, leikjafyrirtæki og öðrum hugbúnaðarlausnum. Helstu verkefni: Greiningar á fjárfestingartækifærum Stuðningur við fyrirtæki í eignasafni Crowberry Aðstoð við uppbyggingu á Crowberry brandinu Hæfniskröfur: Brennandi áhugi á nýsköpun, tækni og fjárfestingum Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna Góð hæfni á sviði greiningar Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta Deloitte Deloitte og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum sem hafa áhuga á endurskoðun og reikningsskilum tækifæri á að kynnast starfsemi fyrirtækisins og fá reynslu af raunverulegum verkefnum áður enn haldið er út í atvinnulífið. Helstu verkefni Endurskoðun og reikningsskil Gerð ársreikninga Gerð uppgjöra og skattaframtala Annað tilfallandi Hæfniskröfur: Áhugi á endurskoðun og reikningsskilum Greiningarhæfni Góð þekking á excel Sjálfstæð vinnubrögð Eylíf Eylíf í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni sem unnið er að innan fyrirtækisins. Vörumerkið Eylíf er 4 ára sprotafyrirtæki sem framleiðir fæðubótarefni sem eru unnin úr hreinum íslenskum hráefnum frá sjálfbærum auðlindum á Íslandi. Öll hráefnin koma frá framleiðendum á Íslandi, sem nýta auðlindir með sjálfbærni að leiðarljósi, og hráefnin hafa staðfesta virkni skv. rannsóknum. Vörurnar eru framleiddar á Grenivík með GMP gæðastaðli. Helstu verkefni: Vöruþróun á nýjum vörum frá Eylíf, bæði húðvörulínu og fæðubótarefnum Markaðs- og samkeppnisgreining Greinaskrif fyrir vef Eylíf um heilsutengd málefni Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Áhugi á vöruþróun og markaðsgreiningu Áhugi á heilstutengdum málefnum Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum Fjármála- og efnahagsráðuneytið - Framkvæmd fjárlaga Fjármála og efnahagsráðuneytið og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi ráðuneytisins í gengum spennandi starfsþjálfunarstöðu á sviði áætlanagerðar og eftirlits með ríkisrekstri og opinberum fjármálum. Skrifstofa stjórnunar og umbóta sinnir fjárstýringu og rekstrarmálefnum ríkisins, lánamálum, umbótastarfi, eigna- og framkvæmdamálum og stefnumörkun í mannauðs- og kjaramálum. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífinu, undir leiðsögn sérfræðinga. Nemandi í þessari stöðu mun fyrst og fremst starfa með sérfræðingum á sviði opinberra fjármála og í áætlanagerð en mun þurfa að geta tekið að sér önnur tengd verkefni ef þörf þykir. Helstu verkefni: Verkefni sem snúa að opinberum fjármálum og áætlanagerð Gagnasöfnun í gagnagrunn Greiningar á upplýsingum um opinber fjármál og útgjöld Hönnun og framsetning upplýsinga og skýrslugerð Hæfniskröfur Þekking og áhugi á fjármálum og áætlanagerð Góð kunnátta á Microsoft Excel Þekking á Power BI og framsetningu gagna Góð íslensku- og enskukunnátta Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð Fjármála- og efnahagsráðuneytið - Opinber fjármál Fjármála og efnahagsráðuneytið og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi ráðuneytisins í gegnum spennandi starfsþjálfunarstöðu á sviði gagnaöflunar, greininga og framsetningu upplýsinga um opinber fjármál. Skrifstofa opinberra fjármála hefur yfirumsjón með stefnumörkun og áætlanagerð í opinberum fjármálum, annast verkstjórn, ráðgjöf og eftirlit með gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga og ber ábyrgð á samhæfinu opinberra fjármála. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífinu, undir leiðsögn sérfræðinga. Nemandi í þessari stöðu mun fyrst og fremst starfa með sérfræðingum á sviði opinberra fjármála og í áætlanagerð en mun þurfa að geta tekið að sér önnur tengd verkefni ef þörf þykir. Helstu verkefni: Verkefni sem snúa að opinberum fjármálum og áætlanagerð Gagnasöfnun í gagnagrunn Greiningar á upplýsingum um opinber fjármál og útgjöld Hönnun og framsetning upplýsinga og skýrslugerð Hæfniskröfur Þekking og áhugi á fjármálum og áætlanagerð Góð kunnátta á Microsoft Excel Þekking á Power BI og framsetningu gagna Góð íslensku- og enskukunnátta Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi FSRE í gegnum starfsþjálfunarstöðu um sjálfvirknivæðingu uppgjöra framkvæmdaverkefna. Nemandinn fær þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunverulegt viðfangsefni með verkefnisstjóra verkefnisins og öðrum sérfræðingum FSRE við að móta nýtt verklag og ferla við lokauppgjör framkvæmdaverkefna, svokallaðs skilamats. Verkefnið hefur snertifleti við fjölmarga þætti starfseminnar s.s. fjárhagslegt uppgjör, stafræna þróun, gæðamál og verkefnastjórnun. Stefnt er að því að lokaafurð verkefnisins verði fullmótuð tillaga að framtíðarfyrirkomulagi við gerð skilamata. Helstu verkefni: Teikna upp og meta núverandi fyrirkomulag og stöðu Öðlast skilning á samspili áætlana, raunkostnaðar, sjálfvirknivæðingar, hugbúnaðar, verkbókhalds, fjárhagsbókhalds og gæðakerfis Taka þátt í greiningu gagna og tillögugerð um árangursmælikvarða og framsetningu þeirra Taka þátt í hönnun og framsetningu ferla og gera tillögu um nýtt fyrirkomulag skilamata Hæfniskröfur: Áhugi á notkun hlutlægra mælikvarða til að meta árangur og stuðla að umbótum Frjó hugsun, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð Grunnþekking á fjárhagsbókahaldi og verkbókhaldi er kostur Skilningur á mikilvægi gagnagrunna og hvernig gögn skapa grunn að upplýsingum er kostur Skilningur verkferlum og gæðamálum Reynsla af byggingaframkvæmdum er kostur Kontakt Kontakt er ein elsta sjálfstæða fyrirtækjaráðgjöf landsins og kemur að eigendaskiptum og endurskipulagningu fyrirtækja á hverju ári. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á litlum og meðalstórum fyrirtækjum og veitir víðtæka þjónustu á því sviði. Í því getur falist leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum, ráðgjöf við samningaviðræður, gerð kaupsamninga, áreiðanleikakönnun, fjárhaglega endurskipulagningu eða fjármögnun. Nemendur vinna undir leiðsögn verkefnastjóra. Helstu verkefni: Verðmat á fyrirtækjum Verkefni í fyrirtækjaráðgjöf Greining á viðskiptatækifærum Samantekt á atvinnugreinum Markaðsgreiningar Hæfniskröfur: Góð Excel kunnátta Góð kunnátta á PowerPoint KPMG Nemendum gefst tækifæri á að vinna að fjölbreyttum raunverkefnum undir leiðsögn reyndra sérfræðinga og kynnast á sama tíma frábærum vinnustað KPMG. Hvað er KPMG? Hjá KPMG á Íslandi starfa um 250 sérfræðingar sem leggja áherslu á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi. Við störfum með fjölbreyttum viðskiptavinum frá litlum sprotafyrirtækjum til stórra alþjóðafyrirtækja og erum stolt af því að veita innsýn, nýsköpun og lausnir sem skarpa verðmæti fyrir viðskiptavini okkar. Starfsnám á endurskoðunarsviði: Starfsnemar á endurskoðunarsviði vinna fjölbreytt verkefni undir leiðsögn löggiltra endurskoðenda. Frábært tækifæri til þess að auka þekkingu nemenda á fjármálum, kynnast ólíkum atvinnugreinum ásamt innsýn inn í störf endurskoðenda. Dagleg störf fela meðal annars í sér ársreikningagerð, reikningsskil, staðfestingar sjálfbærniupplýsinga, greiningu gagna, nýtingu stafrænna lausna og mörg önnur spennandi verkefni. Unnið er í teymum og fá nemendur jafnt stuðning frá starfsfólki sviðsins sem og frá samnemendum. Sjá nánar hér Starfsnám á ráðgjafarsviði: Starfsnemar á ráðgjafarsviði geta valið sér hóp út frá áhuga- og styrkleikasviði en á sviðinu er 5 hópar sem vinna saman að því að leysa flókin vandamál og auka virði viðskiptavina. Hér má lesa meira um hópana Áhættustjórnun Fyrirtækjaráðgjöf (Deal advisory) Rekstrarráðgjöf Sjálfbærni Stafræn ráðgjöf Vinnustaðurinn Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega. Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum. Reglulega bjóðum við árangursríkum starfsnemum starf í lok annar. Taktu fyrsta skrefið í að móta þína framtíð! PwC Ert þú upprennandi endurskoðandi? PwC í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæri til þess að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun á endurskoðunarsviði PwC. Í starfsþjálfun öðlast nemar haldbæra reynslu og fá innsýn inn í störf endurskoðenda. Unnið er undir handleiðslu reyndra sérfræðinga og fá nemendur tækifæri til að vinna að raunverulegum verkefnum á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Um leið og unnið er undir umsjón endurskoðenda eru nemendur í starfsþjálfun hvattir til virks samstarfs og frumkvæðis við verkefnavinnu. Helstu verkefni Uppgjör minni aðila Skattframtalsgerð Kannanir Endurskoðun stærri viðskiptavina Hæfniskröfur Áhugi á endurskoðun og reikningsskilum Góð þekking á Microsoft Excel Metnaður til að ná árangri í starfi Samskipta- og skipulagshæfni Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð Samkeppniseftirlitið Samkeppniseftirlitið býður nemendum að kynnast starfsemi stofnunarinnar. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni sem unnið er að innan Samkeppniseftirlitsins. Nemendur vinna undir leiðsögn aðalhagfræðings og annarra sérfræðinga innan stofnunarinnar. Helstu verkefni Söfnun gagna, tölfræðileg úrvinnsla og skrif Aðstoð við sérfræðinga stofnunarinnar Þátttaka í öðru þróttmiklu starfi Samkeppniseftirlitsins á sviði viðskiptafræði og hagfræði Hæfniskröfur Góð þekking á fjármálum Gott vald á aðferðum í tölfræði og færni í úrvinnslu gagna Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna Hæfni í samskiptum og geta til að vinna undir álagi Færni til að tjá sig í ræðu og riti Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Áhugi á samkeppnismálum Seðlabankinn Hefur þú áhuga á þjóðhagfræði, fjármálum fyrirtækja og greiðslumiðlun? Seðlabanki Íslands í samstarfi við Viðskiptadeild HÍ býður nemendum tækifæri til þess að kynnast starfsemi bankans í gegnum starfþjálfunarstöðu á fjármálastöðugleikasviði. Um er að ræða stöður fyrir tvo nema sem munu vinna undir leiðsögn sérfræðinga sviðsins. Þessar stöður eru í boði fyrir meistaranema á sviði hagfræði eða viðskiptafræði sem lokið hafa 60 ECTS með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni Greining á kerfisáhættu á íbúða- og byggingarmarkaði Greina markaðinn fyirr sýndareignir (e. Crypto assets) hér á landi, umfang, þróun og mögulega áhættu fyrir fjármálastöðugleika. Hæfniskröfur: Meistaranám á sviði hagfræði eða viðskiptafræði Góð færni í notkun töflureiknings og grunnþekking á hagrannsóknum Góð greiningarfærni Brennandi áhugi á þjóðhagfræði, fjármálum fyrirtækja og greiðslumiðlun Gagnrýnin og skapandi hugsun og frumkvæði Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni Travel Connect Travel connect býður nemendum tækifæri til þess að kynnast starfssemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Travel Connect þjónustar átta öflug fyrirtæki sem starfa í ferðaþjónustu við mannauðsstjórnun, fjármál, markaðssetningu og vöruþróun. Við bjóðum upp á framúrskarandi vinnuumhverfi, sveigjanleika í vinnutíma, hundvænan vinnustað og hjólastólaaðgengi Eftirfarandi deildir fyrirtækisins leita að starfsþjálfunarnemum: bókhaldsdeild, innkaupadeild og innheimta, birgða- og verðstýring (inventory and collections). Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur og hafa áhuga á skemmtilegu og alþjóðlegu umhverfi til að sækja um. Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem lokið hafa 120 ECTS með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem lokið hafa 60 ECTS með fyrstu einkunn (7,25). Við bjóðum Dýrmæta reynslu í viðskiptalífinu og ferðaþjónustu Tækifæri til að stækka tengslanetið Stuðning og vinalegt vinnuumhverfi Hæfniskröfur Færni í mannlegum samskiptum Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Góð tölvukunnátta Framúrskarandi enskukunnátta Vegagerðin Hefur þú áhuga á að starfa við rekstur framtíðinni? Ef svo er ættir þú að sækja um þessa starfsþjálfunarstöðu. Vegagerðin og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum sem hafa áhuga á rekstri tækifæri á að kynnast starfsemi Vegagerðarinnar. Þetta er frábært tækifæri til að fá reynslu af raunverulegum rekstrartengdum verkefnum fyrir útskrift. Nemandi í starfsþjálfun mun fyrst og fremst vera undir handleiðslu sérfræðinga við verkefnastjórnun, vörustjórnun, straumlínustjórnun og önnur spennandi verkefni í tengslum við það. Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem lokið hafa 120 ECTS með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem lokið hafa 60 ECTS með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni Verkefnastjórnun Straumlínustjórnun Innleiðing umbótaverkefna Samskipti hagsmunaaðila Hæfniskröfur: Þekkingu á fræðum verkefnastjórnunnar Ferlagreining og umbótahugsun Hæfni til að skipuleggja og vinna verkefni frá upphafi til enda með fjölbreyttum hópi hagsmunaaðila Frumkvæði, upplýsingagjöf og samskipti Össur - Rannsóknar og þróunardeild Össur í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæritil þess að kynnast starfsemi alþjóðlegs fyrirtækis með höfuðstöðvar á Íslandi. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni sem unnið er að innan fyrirtækisins. Nemendur vinna undir leiðsögn sérfræðinga Rannsóknar- og þróunardeildar. Þessi staða er í boði fyrir meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Greina gögn um beinan og óbeinan kostnað af þegar framkvæmdum rannsóknum viðsvegar um heiminn Þróa kostnaðarlíkön fyrir klínískar rannsóknir á lækningatækjum í mönnum Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur: Brennandi áhuga á rannsóknum Þekking á gagnavinnslu og kostnaðargreiningu- og áætlanagerð Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Frumkvæði við úrlausn verkefna Góð hæfni í samskiptum Færni til að tjá sig í ræðu og riti Framúrskarandi enskukunnátta Össur - sílíkondeild Össur í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ bjóða nemendum tækifæri til þess að kynnast starfsemi alþjóðlegs fyrirtækis með höfuðstöðvar á Íslandi. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni sem unnið er að innan fyrirtækisins. Nemendur vinna undir leiðsögn sérfræðinga í Sílikondeild Össurar. ”Verkefnið felur í sér að rannsaka hvaða breytur hafa áhrif á möttun á sílíkonlínum sem settar eru á textíl á hulsum. Markmið verkefnis er að lágmarka möttunartíma með tilliti til viðeigandi þátta. Sem dæmi um breytur eru möttunarefni, hitastig, rakastig, súrefnismagn og tegund textíls. Mikil umbótatækifæri liggja fyrir í þessu spennandi verkefni.” Helstu verkefni: Þátttaka í verkfræðiteymi Sílikondeildar Össurs Verkefni í tengslum við þróun á vörum Stuðningur við starfsfólk Sílikondeildar Össurs Önnur tilfallandi verkefni í Sílikondeild Össurs Hæfniskröfur: Brennandi áhugi á framleiðsluferlum, þróun vara og efnafræði Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna Góð samskiptahæfni Færni til að tjá sig í ræðu og riti Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta Stöður á sviði markaðsmála Artasan Artasan í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi heilsuvörudeildar Artasan í gegnum starfsþjálfun. Starfsþjálfunarstaðan hefur upp á að bjóða spennandi verkefni og lærdóm sem mun nýtast vel í framtíðinni. Heilsuvörudeild Artasan sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu á vítamínum og bætiefnum ásamt ýmis konar heilsutengdum vörum. Við leggjum metnað okkar í að bjóða einungis hágæðavörur sem eru framleiddar af sérvöldum framleiðendum víðs vegar um heiminn þar sem einungis er notast við gæðahráefni. Markmið okkar er selja vörur sem stuðla að bættri heilsu, vellíðan og auknum lífsgæðum. Vörurnar eru seldar í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða og verslana. Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Gerð markaðs-, kynningar- og fræðsluefnis í samstarfi við vörumerkjastjóra Sölu- og fræðslukynningar Umsjón með samfélagsmiðlum og markaðsstarfi með áhrifavöldum Stuðningur og samstarf við markaðsstjóra deildarinnar Hæfniskröfur: Áhugi á almennri heilsutengdum málefnum og áhrifum bætiefna á heilsuna Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð Góðir samskiptahæfileikar og lausnarmiðað viðhorf Góð almenn tölvukunnátta Birta Media Birta Media í samstarfi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum sem hafa áhuga á markaðsmálum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Birta Media sér um stafrænar markaðslausnir og tekur meðal annars að sér stafræna markaðssetningu, vefsíðugerð og umsjón með samfélagsmiðlum hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Verkefnin eru fjölbreytt og munu gefa innsýn í hvaða færni þarf að búa yfir til þess að ná árangri á stafrænum miðlum. Helstu verkefni: Markaðssetning á netinu Hugmyndavinna Eftirfylgni með samfélagsmiðlaplani Umsjón með Google og Facebook herferðum Gagnagreining Hæfniskröfur: Á auðvelt með að vinna í teymi Góð samskiptafærni Áreiðanleiki Sköpunargleði Birtingahúsið Viltu þú taka þátt í að setja upp auglýsingaherferðir fyrir stærstu vörumerkin á Íslandi? Birtingahúsið veitir faglega ráðgjöf um auglýsingabirtingar, markaðssetningu og uppbyggingu auglýsingaherferða. Okkur er treyst fyrir mörgum af verðmætustu vörumerkjum landsins. Helstu verkefni: Uppsetning birtingaáætlana. Uppsetning stafrænna herferða á miðlum líkt og Meta, Youtube og Google ads. Þátttaka í samskiptum við viðskiptavini og fjölmiðla. Vinna við endurgjöf og árangursskýrslur. Hæfniskröfur: Brennandi áhugi á markaðsmálum. Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum. Góð skipulags- og greiningarhæfni. Góð íslensku og ensku kunnátta í rituðu og töluðu máli. Bónus Afhverju áttu að sækja um? Þú verður hluti af teyminu sem sér um Bónus vörumerkið og færð þannig einstaka innsýn inn í eitt stærsta vörumerki landsins. Lærir að setja upp markaðsherferðir frá A til Ö og setja hana í loftið. Frábært tækifæri til að nýta þekkinguna frá náminu og beita henni á raunverulegum verkefnum. Vinna undir leiðsögn markaðsstjóra með u.þ.b. 15 ára starfsreynslu. Coca Cola á Íslandi Coca Cola á Íslandi ásamt Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands býður upp á starfsþjálfun. Að fara í starfsþjálfun hjá Coca Cola á Íslandi er frábært tækifæri á að taka þátt í fjölbreyttum markaðstengdum verkefnum með heimsþekkt vörumerki. Helstu verkefni eru: Greiningarvinna Aðstoð við gerð markaðsáætlana Þátttaka í viðburðum Greining á viðburðum og áhrifum þeirra Framkvæmd og eftirfylgni markaðsaðgerða Creditinfo Creditinfo í samstarfi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum sem hafa áhuga á markaðsmálum og viðskiptaþróun tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Creditinfo er leiðandi upplýsinga- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga, fjölmiðlavöktun og ráðgjöf á áhættumati og áhættustýringu fyrirtækja. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífinu, undir leiðsögn sérfræðinga. Helstu verkefni: Greining sölutækifæra fyrir tilteknar vörur Creditinfo Samskipti við tilvonandi viðskiptavini Greining á þörfum viðskiptavina Samantekt og kynning á sölutækifærum Hæfniskröfur: Áhugi á markaðsmálum og viðskiptaþróun Góð færni í greiningu gagna Gott skipulag og sjálfstæð vinnubrögð Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta ENNEMM Auglýsingastofan ENNEMM leitar að nemanda í starfsþjálfun. Helstu verkefni eru öflun og lestur gagna um neytendahegðun, markhópagreining, gerð birtingaáætlana og samantekt á árangri birtinga. Ef þú hefur mikinn áhuga á markaðsmálum og mannlegri hegðun, ættir þú að sækja um! Hoobla Hoobla er vettvangur sem veitir fyrirtækjum og stofnunum aðgang að yfir 600 sérfræðingum, stjórnendum og ráðgjöfum sem taka að sér tímabundin verkefni og hlutastörf. Helstu verkefni eru: Skipulagning markaðsnálgunar með framkvæmdastjóra og efnishöfundi. Uppsetning markaðsefnis í Canva. Skipulagning markaðsefnis og birtingardagatals. Birting markaðsefnis í planable. Birting markaðsefnis á Meta Business Suite. Komast með okkur inn á Google Analytics og sjá hvað við getum gert betur á Google. Komast betur með okkur inn í póstmarkaðssetningu. Mælingar á árangri og mat. Hvíta húsið Hvíta húsið er auglýsingastofa sem sérhæfir sig í skapandi lausnum fyrir viðskiptavini fyrirtækisins og að skapa sterk tengsl milli vörumerkja og neytenda. Hvíta húsið bjóða nemanda að kynnast starfsemi auglýsingastofunnar. Nemandinn fær þjálfun í ýmiskonar greiningarvinnu í tengslum við markaðsaðgerðir og auglýsingagerð. Einnig fær nemandinn að spreyta sig á markaðsetningu á samfélagsmiðlum og skipulagi auglýsingabirtinga. Helstu verkefni: Öflun og lestur gagna um neytendahegðun Markhópagreining gerð birtingaáætlana Samantekt á árangri birtinga og skýrslugerð. Hæfniskröfur: Grunnþekking á virkni samfélagsmiðla Grunnþekking og áhugi á markaðsmálum Góð þekking á tölfræði og lestri gegna Frumkvæðni nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð Brennandi áhugi á mannlegri hegðun Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). KIWI KIWI er stafræn auglýsingastofa, byggð fyrir núið. Hjá KIWI starfa snillingar í heildrænni stafrænni markaðssetningu til að hjálpa metnaðarfullum fyrirtækjum að skara fram úr í sínu markaðsstarfi. Við leggjum áherslu á að fara fram úr væntingum og búa til jákvæða, einstaka og minnisstæða þjónustuupplifun fyrir alla okkar viðskiptavini. Í starfsþjálfun hjá KIWI fá nemendur góða innsýn í heim stafrænnar markaðssetningar, unnið er undir leiðsögn tengiliða KIWI auk hönnuða og birtingadeildar. Helstu verkefni: Textasmíði fyrir viðskiptavini Útfæra efnisáætlanir fyrir samfélagsmiðla fyrir viðskiptavini Vinna með leikstjóra og framleiðanda í pitch vinnu Aðstoð á tökustað með framleiðsluteymi KIWI Skapandi hugmyndavinna fyrir viðskiptavini Samfélagsmiðla umsjón fyrir KIWI Hæfniskröfur: Góð íslensku kunnátta í rituðum máli Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð Brennandi áhugi á markaðsmálum, sköpun og samfélagsmiðlum Markaðs og samskiptasvið HÍ Markaðs- og samskiptasvið Háskóla Íslands leitar að nemanda sem hefur áhuga á að öðlast dýrmæta reynslu við miðlun og markaðssetningu á samfélagsmiðlum og viðburðastjórnun. Unnið er með fjölbreyttum og reynslumiklum hópi starfsfólks að því að kynna starf skólans fyrir verðandi nemendum, háskólasamfélaginu og almenningi. Ef þú vilt læra meira þá höfum við pláss fyrir þig. Helstu verkefni: Miðlun og markaðssetning á samfélagsmiðlum Aðstoð vegna viðburða Efnissköpun fyrir miðla sem skólinn heldur úti Ýmis önnur verkefni í vefmiðlun og upplýsingagjöf Hæfniskröfur: Góð þekking á markaðsfræði og vörumerkjastjórnun Mikill áhugi á samfélagsmiðlum og markaðssetningu Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta MARS Helstu verkefni: Markaðssetning á Meta og Google Markaðsrannsóknarvinna Gagnagreining Hugmyndavinna fyrir viðskiptavini MARS Samfélagsmiðlastjórn fyrir MARS Tilfallandi spennandi verkefni Hæfniskröfur: Góð íslensku kunnátta í ræðu og riti Góð mannleg samskipti Gott skipulag og framkvæmdagleði Brennandi áhugi á markaðsmálum, sköpun og samfélagsmiðlum Elskar að hafa gaman Iceland Innovation Week Iceland Innovation Week og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemanda að kynnast starfsemi fyrirtækisins gegnum starfsþjálfun. Hjá Iceland Innovation Week starfa 5 aðilar og mun neminn koma til með að starfa náið með öllu teyminu og fá tækifæri til að starfa í alþjóðlegu umhverfi nýsköpunar og kynnast þar með sprotasenunni ásamt almennu viðburðahaldi og markaðssetningu. Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem lokið hafa 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Undirbúningur og skipulag fyrir hátíðina Markaðssetning á hátíðinni Þátttaka í hátíðinni (13-17 maí 2023) Hæfniskröfur: Áhugi á nýsköpun og viðburðarhaldi Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Góð íslensku- og enskukunnátta Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna Teboðið Teboðið og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum sem hafa áhuga á markaðsmálum og viðburðastjórnun að kynnast starfsemi Teboðsins í gegnum starfsþjálfunarstöðu. Teboðið er íslenskt sprotafyrirtæki, auglýsingamiðill, hlaðvarp og netverslun. Í starfsþjálfun hjá Teboðinu fá nemendur góða innsýn í fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðsmálum. Stöður á sviði stjórnunar og mannauðsstjórnunar 66° N 66° Norður og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemanda að kynnast starfsemi fyrirtækisins í gegnum starfsþjálfunarstöðu á sviði mannauðsmála. Helstu verkefni eru m.a. skipulag deilda, aðstoð við gerð og uppfærslu á starfs- og árangurslýsingum og skilgreining ábyrgðarsviða. Viðkomandi vinnur verkefnið í samvinnu við forstjóra og aðra lykilstjórnendur fyrirtækisins. Þessi staða er í boði fyrir meistaranema í mannauðsstjórnun sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Yfirfara skipulag deilda með það að markmiði að hámarka framleiðni og samstarf milli deilda Aðstoða stjórnendur við gerð og uppfærslu starfs- og árangurslýsinga Skerpa á skilgreiningu ábyrgðarsviða stjórnenda og lykilstarfsmanna Uppsetning og innleiðing árangursmælinga Hæfniskröfur: Góð enskukunnátta Skipulögð vinnubrögð Reynsla af vinnu með árangursmælikvarða (KPI’s) Frumkvæðni Jákvæðni Carbfix Carbfix, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, í samstarfi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða meistaranemum í mannauðsstjórnun tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Carbfix hefur það hlutverk að leggja verulega af mörkum til lausnar á loftslagsvanda heimsins með skölun og frekari þróun á kolefnisbindingu í bergi á heimsvísu. Það eru spennandi verkefni framundan hjá okkur og við erum að leita að metnaðarfullum starfsnema til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á ört stækkandi vinnustað. Þessi staða er í boði fyrir meistaranema í mannauðsstjórnun sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Kortleggja ferla í tengslum við ráðningar erlendra sérfræðinga Gerð upplýsingabæklinga tengdum mannauðsmálum Þátttaka í skipulagningu viðburða Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur: Brennandi áhugi á mannauðsstjórnun Frumkvæði Sjálfstæð vinnubrögð Góð samskiptahæfni Framúrskarandi hæfni á íslensku og ensku Coca Cola á Íslandi Coca Cola á Íslandi í samstarfi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum sem hafa áhuga á mannauðsmálum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Þetta er frábært tækifæri til þess að taka þátt í fjölbreyttum mannauðstengdum verkefnum í alþjóðlegu umhverfi. Helstu verkefni: Ráðningar Skráningar í kerfi Skráning á fræðslu og eftirfylgni Þátttaka í viðburðum Samræming gagna Dagar Dagar í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ vilja bjóða nemendum að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Félagið er með fjölbreytta starfsemi og um 800 starfsmenn af 41 þjóðerni. Nemandi í þessari stöðu mun vinna undir leiðsögn mannauðsstjóra félagsins að krefjandi og skemmtilegum verkefnum við þróun mannauðsmála í stóru og fjölbreyttu fyrirtæki. Nemandi verður hluti af teymi mannauðsráðgjafa. Helstu verkefni: Ráðningar Skráningar í kerfi Skráning og utanumhald um fræðslu Skipulagning á viðburðum fyrir starfsfólk Önnur mannauðstengd verkefni Hæfniskröfur: Undirbúningur í námi sem hentar verkefnum Góð þekking á microsoft svítunni Framúrskarandi samskiptahæfni Nákvæm vinnubrögð og metnaður Færni til að vinna í teymi Áhugi á að starfa við mannauðsmál Virðing og áhugi fyrir fólki Embla medical Embla Medical býður áhugasömum nemanda sem vill kynnast mannauðsmálum í alþjóðlegu fyrirtæki tækifæri til þess að koma í starfþjálfun hjá fyrirtækinu. Nemandinn mun fá dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunverulegum viðfangsefnum sem unnin eru innan fyrirtækisins. Helstu verkefni: Þátttaka í alþjóðlegu starfsþróunarteymi Verkefni í tengslum við innleiðingu á nýju starfsþróunar/fræðslukerfi Stuðningur við starfsfólk mannauðsdeildar Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur: Brennandi áhugi á mannauðsmálum. Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Frumkvæðni í úrlausn verkefna Færni til að tjá sig í ræðu og riti Framúrskarandi íslensku og enskukunnátta Eimskip Eimskip og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum að kynnast starfsemi í Fræðslu- og starfsþróunardeild í gegnum starfsþjálfun. Nemendur fá dýrmæta reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunverulegum verkefnum innan fyrirtækis, bæði á Íslandi og erlendis. Viðskomandi mun vinna undir handleiðslu yfirmanns deildarinnar og í samstarfi við aðra sérfræðinga í fyrirtækinu. Helstu verkefni: Fræðslu- og starfsþróunarmál fyrir Eimskip Ísland og International Umsjón fræðsludagskrár og viðburða Framleiðsla og þróun á námskeiðum Skipulagning á leiðtogaþjálfun Þáttaka á ýmsum verkefnum á sviði fræðslu, starfsþróunar og mannauðsmála. Hæfniskröfur: Hæfni í samskiptum og teymisvinnu Frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í vinnubrögðum Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku Færni í miðlun upplýsinga Áhugi á þróun og vexti einstaklinga Reynsla af gerð myndefnis og fræðsluefnis er kostur Jákvæðni, drifkraftur og vilji til að læra Embla medical Embla Medical býður áhugasömum nemanda sem vill kynnast mannauðsmálum í alþjóðlegu fyrirtæki tækifæri til þess að koma í starfsþjálfun hjá fyrirtækinu. Nemandinn mun fá dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunverulegum viðfangsefnum sem unnin eru innan fyrirtækisins. Helstu verkefni: Þátttaka í alþjóðlegu starfsþróunarteymi Emblu Medical (Learning & Development - Global) Verkefni í tengslum við innleiðingu á nýju starfsþróunar/fræðslukerfi Stuðningur við starfsfólk mannauðsdeildar Önnur tilfallandi verkefni á mannauðssviði Emblu Medical á Íslandi Hæfniskröfur: Brennandi áhugi á mannauðsmálum. Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Frumkvæðni við úrlausn verkefna Færni til að tjá sig í ræðu og riti Framúrskarandi íslensku og enskukunnátta Hagvangur Hagvangur og Viðskiptafræðideild Háskola Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Hagvangur hefur leitt faglegar ráðningar á Íslandi síðan það tók til starfa árið 1971. Fyrirtækið hefur ávallt lagt áherslu á traust og trúnað, persónulega þjónustu og verið í hópi fyrirmyndarfyrirtækja síðustu ár. Nemandi í þessari stöðu mun vinna undir leiðsögn reyndra ráðgjafa. Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Viðtöl við umsækjendur Greining og mat á umsóknum Gerð hæfnistaflna Öflun umsagna Ýmis ferlavinna Aðstoð í ráðgjafaverkefnum Hæfniskröfur: Undirbúningur í námi sem hentar verkefnum sem best Góð þekking á Microsoft Excel Framúrskarandi góð samskiptafærni Nákvæm vinnubrögð og samviskusemi Færni til að vinna í teymi Virðing og áhugi fyrir fólki Kópavogsbær Kópavogsbær býður nemanda að kynnast mannauðsmálum bæjarfélagsins í gegnum starfsþjálfun. Þetta er frábært tækifæri til að fá reynslu af raunverulegum mannauðstengdum verkefnum fyrir útskrift. Nemandi í starfsþjálfun starfar undir handleiðslu sérfræðinga. Helstu verkefni Skráning og yfirferð ráðningargagna Virk samskipti við stjórnendur vegna launa- og/eða tímaskráningarkerfis Launavinnsla Skjalavinnsla Ýmis umbótaverkefni og þátttaka í gæðastarfi Hæfniskröfur Góð tölvukunnátta. Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Færni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að vinna í hóp. Skipulagshæfni og samviskusemi. Nákvæmni og færni við að vinna með tölur. Góð íslenskukunnátta. RÚV RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. RÚV tekur virkan þátt í íslensku menningarlífi með því að skapa, miðla og fjalla um öll svið menningar og lista. RÚV sýnir frumkvæði og djörfung í sköpun sinni, miðlun og umfjöllun. Stefna RÚV er að þar starfi fjölbreyttur starfshópur og hvetjum við áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun. RÚV býður nema að kynnast starfsemi félagsins með starfsþjálfunarstöðu á sviði mannauðsmála Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Yfirferð starfsheita og starfslýsinga ásamt því að kynnast verkefnum deildarinnar, s.s. aðstoð við ráðningaferli, fræðslumál og fleira. Hæfniskröfur: Áhugi, frumkvæði og jákvæðni. Mjög góð samstarfs- og samskiptafærni Vandvirkni og góð skipulagshæfni. Sjóvá Sjóvá og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemenda að kynnast starfsemi fyrirtækisins í gegnum starfsþjálfun. Hjá Sjóvá starfar sterkur og skemmtilegur hópur fólks sem kappkostar að veita viðskiptavinum afburðaþjónustu. Viðskiptavinir Sjóvá eru ánægðustu viðskiptavinir íslenskra tryggingafélaga samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2023 og starfsánægja er með því mesta sem mælist hjá íslenskum fyrirtækjum. Verkefnin eru á sviði mannauðs og gæðamála felast meðal annars í innleiðingu á rafrænu fræðslukerfi og endurskoðun starfsmannahandbókar og nýliðaþjálfunar. Þessi staða er í boði fyrir meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Aðstoð við innleiðingu á rafrænu fræðslukerfi Þarfagreining fræðslu Endurskoðun starfsmannahandbókar Endurskoðun starfslýsinga Verkefni tengd nýliðaþjálfun og móttöku nýs starfsfólks Hæfniskröfur: Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun Þjónustulund og mikil samskiptahæfni Greiningarhæfni og nýsköpunarhugarfar Travel Connect Travel Connect í samstarfi við Viðskiptafræðideild HÍ býður nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins í gegnum starfsþjálfun. Travel Connect er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og leiðandi í þjónustu við erlenda ferðamenn á Íslandi. Travel Connect þjónustar átta öflug fyrirtæki sem starfa í ferðaþjónustu við mannauðsstjórnun, fjármál, markaðssetningu og vöruþróun. Við bjóðum uppá framúrskarandi, vinnuumhverfi, sveigjanleika í vinnutíma, hundavænan vinnustað og hjólastólaaðgengi. Eftirfarandi deildir fyrirtækisins leita að starfsnemum: Bókhaldsdeild, mannauðsdeild og innkaupadeild. Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur og hafa áhuga á skemmtilegu og alþjóðlegu umhverfi til þess að sækja um Við bjóðum: Dýrmæta reynslu í viðskiptalífinu og ferðaþjónustu Tækifæri til að stækka tengslanetið Stuðning og vinalegt vinnuumhverfi Hæfniskröfur: Færni í mannlegum samskiptum Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Góð tölvukunnátta Framúrskarandi enskukunnátta Stöður á sviði nýsköpunar, sjálfbærni og umhverfismála Brim Brim hf og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi leiðandi sjávarútvegsfyrirtækis með metnað í umhverfismálum. Brim tekur virkan þátt í að móta framtíð sjálfbærs sjávarútvegs byggða á nýsköpun, tækniþróun og sjálfbærni. Í starfsþjálfun fá nemendur þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni sem unnið er að innan fyrirtækisins. Nemendur vinna undir leiðsögn sérfræðinga innan Brims. Þessi staða er í boði fyrir grunnnema sem hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Framsetning umhverfisupplýsinga Brims Innleiðing sjálfbærnireglugerða og skýrslugerð því tengt Sviðsmyndagreining Hæfniskröfur: Undirbúningur í námi sem hentar verkefnum best Framúrskarandi samskiptafærni Nákvæm vinnubrögð og samskiptafærni Færni til að vinna í teymi Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta Klak Icelandic Startup KLAK Icelandic Startups og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi félagsins gegnum starfsþjálfun. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni sem unnið er að innan fyrirtækisins. Nemendur vinna undir leiðsögn verkefnastjóra. KLAK - Icelandic Startups er óhagnaðardrifið félag sem styður við samfélag frumkvöðla á Íslandi og eru skrifstofur fyrirtækisins í Grósku. KLAK keyrir árlega 3-4 viðskiptahraðla með mismunandi áherslum ásamt því að halda Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni landsins. KLAK hjálpar sprotafyrirtækjum að vaxa innanlands og út fyrir landsteinana með því að hraða þróun þeirra og tengja þau við sérfræðinga, fjárfesta og aðra lykilaðila. Helstu verkefni: Aðstoð við almenna verkefnastýringu í verkefnum á vegum KLAK - Icelandic Startups. Þar á meðal er skipulag á vísindaferðum Gulleggsins í Grósku. Hæfniskröfur: Áhugi á nýsköpun Góð kunnátta á gerð glærukynninga (Canva eða Powerpoint) Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð Góð mannleg samskipti Iceland Innovation Week Iceland Innovation Week og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemanda að kynnast starfsemi fyrirtækissins. Í starfsþjálfun fá nemendur þjálfun, reynslu og tækifæri til þess að koma að markaðssetningu á alþjóðlegri hátíð ásamt viðburðahaldi. Hjá Iceland Innovation Week starfa 6 aðilar og mun neminn koma til með að starfa náið með öllu teyminu og fá tækifæri til að starfa í alþjóðlegu umhverfi nýsköpunar og kynnast þar með sprotasenunni ásamt almennu viðburðahaldi og markaðssetningu. Helstu verkefni: Undirbúningur og skipulag fyrir hátíðina. Markaðssetning á hátíðinni Þátttaka í hátíðinni (12-16. maí 2025) Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur Áhugi á nýsköpun og viðburðahaldi Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð Góð íslensku- og enskukunnátta Áhugi á stafrænni markaðssetningu og birtingu efna Frumkvæði við úrlausn verkefna Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum tækifæri til að kynnast nýsköpunarumhverfinu á Íslandi í gegnum starfsþjálfun. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins var stofnaður með lögum árið 1997 og hefur í aldarfjórðung verið einn af hornsteinum nýsköpunar á Íslandi. Sjóðurinn fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum snemma á vegferð þeirra, leitar að markaðsbrestum í fjármögnun, mildar sveiflur og beitir sér þar sem aðstæður krefjast. Nýsköpunarsjóður tekur virkan þátt í nýsköpunarsamfélaginu og er t.d.einn eiganda Klaks, félagi í Framvís, einn skipuleggjanda Nýsköpunarþings og fleiri viðburða. Leitað er eftir nema sem mun sinna fjölbreyttum verkefnum, meðal annars greiningum á tækifærum og markaðsbrestum og skipulagningu átaksverkefna. Þessi staða er í boði fyrir grunnnema í Viðskiptafræðideild sem hafa lokið 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25) eða meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Skipulagning og vinna við átaksverkefni Greining á sprotafyrirtækjum í eignasafni NSA Greining á nýjum fjárfestingatækifærum Greining á mögulegum markaðsbrestum í fjármögnunarumhverfinu Hæfniskröfur: Góður skilningur og áhugi á nýsköpunarumhverfinu Góð hæfni og reynsla á sviði greiningarvinnu Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð Paxflow PaxFlow er sprotafyrirtæki sem vinnur að þróun hugbúnaðarlausna í ferðaþjónustu sem nýlega hlaut 300 milljóna króna fjármögnun frá Brunni Ventures til að þróa lausnina og auka vöxt hennar enn frekar á erlendum mörkuðum. PaxFlow leitar að drífandi viðskiptafræðinemum í starfsþjálfun hjá fyrirtækinu sem vilja fá tækifæri til að kynnast rekstri og framgangi í fjármögnuðu sprotafyrirtæki með metnaðarfull markmið. Starfsþjálfun er í boði fyrir nemendur í Viðskiptafræðideild sem lokið hafa 120 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Í boði eru fjölbreytt verkefni fyrir einstakling sem hefur brennandi áhuga á nýsköpun og rekstri sprotafyrirtækja m.a. á sviði viðskipta- og markaðsgreininga s.s. markahópagreining, greining markaða (innanlands og erlendis) og greining á viðskiptatækifærum. Hæfniskröfur: Brennandi áhugi fyrir nýsköpun, tækni og rekstri sprotafyrirtækja Framkvæmdageta til að sinna verkefnum frá upphafi til loka Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Tilbúi/n/n/ð til að takast á við fjölbreytt verkefni á sviði viðskipta Vera fljót(ur) að læra og tileinka sér nýja þekkingu Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar Frumkvæði, drifkraft og metnað til að standa sig vel Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta facebooklinkedintwitter