Heiðursmálþing Háskóla Íslands í minningu Páls Skúlasonar

Aðalbygging
Hátíðasalur
Háskóli Íslands stendur fyrir síðdegismálþingi í minningu Páls Skúlasonar, prófessors og fyrrverandi rektors, þann 4. júní 2025 í Hátíðasal háskólans. Tilefnið er afmæli Páls Skúlasonar, sem hefði orðið 80 ára þann dag.
Málþingið mun innihalda fræðileg erindi sem snerta heimspeki og verk Páls. Á meðal helstu viðfangsefna hans voru stjórnmál og lýðræði, siðfræði náttúrunnar, hlutverk háskóla, siðfræði og gagnrýnin hugsun, verufræði, merking og tilgangur.
DAGSKRÁ
Hátíðasalur í Aðalbyggingu
Málþing sett. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs
13.05-13.35 Kristján Kristjánsson: UM SIÐFRÆÐI PÁLS SKÚLASONAR
Hátíðasalur
13.40-14.00 Vilhjálmur Árnason: SKATTAR, RÍKIÐ OG FRELSI
14.00-14.20 Mikael Karlsson: ERTU TRÚAÐUR?
14.20-14.40 Kaffiveitingar
14.40-15.00 Róbert Haraldsson: HEIMSPEKINGUR HEIMSPEKINNAR – UM HEIMSPEKIIÐKUN PÁLS SKÚLASONAR
15.00-15.20 Ellert Björgvin Schram: SAMBAND SKYNSEMI OG TILFINNINGA
15.20-15.40 Guðbjörg R. Jóhannesdóttir: „OG HUGURINN OPNAST FYRIR FULLKOMINNI FEGURГ – HVERNIG?
15.40-16.00 Marteinn Sindri Jónsson: NÝJA NÝJA ÍSLAND OG INNVIÐARÝNI
Stofa A-220
13.40-14.00 Björn Þorsteinsson: HÁSKÓLINN OG UMHVERFINGIN
14.00-14.20 Stefán Frímann Jökulsson: HUGLEIÐINGAR UM NÁTTÚRUUPPLIFUN PÁLS VIÐ ÖSKJU
14.20-14.40 Kaffiveitingar
14.40-15.00 Ole Sandberg: PÁLL‘S JOURNEY TO THE LIMITS OF PHILOSPOHY AND BACK
15.00-15.20 Ástríður Stefánsdóttir: FYRIR HVERJA ER HÁSKÓLI?
15.20-15.40 Ólafur Páll Jónsson: ER HÁSKÓLABORGARINN DAUÐUR?
15.40-16.00 Henry Alexander Henrysson: PÁLL UM AKADEMÍSKT FRELSI
Hátíðasalur
16.00-16.30 Hugleiðingar í minningu Páls
- Vinir og samstarfsfólk minnast Páls
- Jón Atli Benediktsson rektor HÍ flytur lokaávarp
16.30 Samvera og léttar veitingar
Páll Skúlason var ekki aðeins áhrifamikill heimspekingur heldur einnig farsæll rektor Háskóla Íslands á árunum 1997 til 2005.
Á meðan hann gegndi embætti rektors lagði hann mikla áherslu á að efla akademískt frelsi og gagnrýna hugsun innan háskólasamfélagsins. Verk hans og hugmyndir hafa haft varanleg áhrif á íslenskt samfélag, háskóla og heimspekina.
Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hefur umsjón með málþinginu og veitir Henry Alexander Henrysson hah@hi.is frekari upplýsingar fyrir hönd undirbúningshóps.
Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á að heiðra minningu Páls Skúlasonar og hans mikilvægu framlagi til heimspekinnar og háskólasamfélagsins.
Gagnlegir tenglar:
https://pallskulason.is/
Minningarsíða Páls á fésbók
Páll Skúlason var ekki aðeins áhrifamikill heimspekingur heldur einnig farsæll rektor Háskóla Íslands á árunum 1997 til 2005.
