Kvikmyndasýning: Le conseguenze dell'amore

Hvenær
27. mars 2025 18:30 til 20:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsal
Nánar
Aðgangur ókeypis
Námsgrein í ítölsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands sýnir kvikmyndina Le conseguenze dell'amore (2004) í Auðarsal í Veröld, fimmtudaginn 27. mars kl. 18:30. Myndin verður sýnd á ítölsku með enskum texta. Verið öll velkomin og aðgangur ókeypis.
Le conseguenze dell'amore er í leikstjórn Paolo Sorrentino og með aðalhlutverk fer Toni Servillo. Í myndinni er fylgst með Titta Di Girolamo, dularfullum manni sem lifir einangruðu lífi á hóteli í Sviss. Þegar ástin kemur óvænt inn í tilveru hans, tekur líf hans ófyrirsjáanlega stefnu með hættulegum afleiðingum.
Námsgrein í ítölsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands sýnir kvikmyndina Le conseguenze dell'amore (2004) í Auðarsal í Veröld, fimmtudaginn 27. mars kl. 18:30.
