Sáttabækur. Gluggi inn í líf íslenskra kvenna á 19. og 20. öld

Árnagarður
Stofa 304
Harpa Rún Ásmundsdóttir sagnfræðingur heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist: „Sáttabækur. Gluggi inn í líf íslenskra kvenna á 19. og 20. öld.“
Málstofan er í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 11. mars kl. 16:00-17:00. Verið öll velkomin.
Um erindið
Laust fyrir aldamótin 1800 urðu sáttanefndir hluti af íslensku réttarkerfi og var hlutverk þessara nefnda að miðla málum milli einstaklinga og leita sátta í minniháttar ágreiningsefnum. Síðastliðið sumar var Gagnagrunnur sáttanefndabóka opnaður en í hann eru skráðar nær allar varðveittar sáttabækur frá 1798 fram til 1936. Bækurnar veita áhugaverða innsýn í hversdagslíf Íslendinga og ekki síst íslenskra kvenna sem margar nýttu sér nefndirnar til þess að sækja rétt sinn og leita lausna í deilumálum sínum. Í erindinu verður sjónum beint að því hvernig sáttabækur nýtast sem heimildir um líf íslenskra kvenna, hvaða konur komu fyrir nefndirnar og hvers konar mál þær voru viðriðnar.
Harpa Rún Ásmundsdóttir sagnfræðingur.
