Skip to main content

Þættir í stjórnun skóla, Örnám á framhaldsstigi

Þættir í stjórnun skóla, Örnám á framhaldsstigi

Menntavísindasvið

Þættir í stjórnun skóla

Örnám á framhaldsstigi – 30 einingar

Stutt námsleið fyrir fólk sem vill efla hæfni sína sem stjórnendur. Gerð er krafa um að fólk hafi minnst tveggja ára starfsreynslu að loknu kennsluréttindanámi. Fjarnám.

Skipulag náms

X

Rekstur skóla (STM032F)

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist aukinn skilning á ytra umhverfi skóla og samspili við ákvarðanatöku um nýtingu fjármuna og stefnur í menntun. Til umfjöllunar eru fjármögnun menntunar, kostnaðaruppbygging skóla og fjárhagsáætlun sem stjórntæki.

X

Kenningar um menntastjórnun, stofnanir og skipulagsheildir (STM212F)

Markmið þessa námskeiðs er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á helstu hugtökum og kenningum um stofnanir og atferli einstaklinga innan þeirra.

Til umfjöllunar eru kenningar um stofnanir, helstu hugtök og nýlegar rannsóknir. Fjallað verður um mennta- og þjónustustofnanir sem opið kerfi, regluveldi og vinnustað fagfólks, menningu, vald, áhugahvöt, mannauð, jafnrétti, ákvarðanir, árekstra og ágreining á vinnustöðum.

Í námskeiðinu verða lögð fyrir fjölbreytt einstaklings-, para og hópverkefni. Þátttakendur fá markvissa þjálfun í að rýna í ólíkar kenningar um skipulagsheildir og stofnanir, rannsóknir og aðferðir sem tengjast skólastarfi og stjórnun.
Námið er byggt upp á fyrirlestrum, umræðum, hópvinnu, lestri og verkefnavinnu. Þátttakendur vinna fjarkennslu-verkefni, málstofuverkefni og skrifa fræðilega lokaritgerð. Auk þess ræða nemendur fræðilegt efni í afmörkuðum hópum á Netinu og skila um það skýrslu.

Hvort sem um fjarnám eða staðnám er að ræða, byggist þátttaka á námskeiðinu á lifandi samfélagi og samræðu, í raunheimum sem og á netinu. Allt námsferlið miðar að því að nýtast þátttakendum á beinan hátt í eigin starfi.

X

Menntun og mannauðsstjórnun (STM033F)

Meginmarkmiðið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og hæfni á sviði mannauðsstjórnunar og verði færir um að beita þekkingu sinni í skólastarfi eða á öðrum vettvangi innan menntakerfisins. Fjallað verður um þróun mannauðsstjórnunar og lögð áhersla á að nemendur tileinki sér nýjustu kenningar um mannauðsstjórnun. Megin viðfangsefni mannauðsstjórnunar verða kynnt með áherslu á að þátttakendur skilji helstu áskoranir og mikilvægi mannauðsstjórnunar, bæði í fræðilegum og hagnýtum tilgangi.

Vinnulag
Námið er byggt upp á fyrirlestrum, umræðum, hópvinnu, lestri og verkefnavinnu. Þátttakendur vinna fjölbreytt og hagnýt verkefni sem nýtast þeim í starfi.

X

Í sporum leiðtoga á vettvangi (STM029F)

Markmið námskeiðs er að nemendur öðlist innsýn í dagleg störf og umhverfi skólastjórnenda og stjórnenda á vettvangi frítímans. Það gætu verið skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar i leik- grunn- og framhaldsskólum, stjórnendur frístundamiðstöðva, frístundaheimila og félagsmiðstöðva eða stjórnendur á sviði æskulýðsmála. Markmiðið er að nemendur geti fjallað um dagleg störf og umhverfi í fræðilegu samhengi, að þeir kynni sér áhrif námskráa, laga og reglugerða á störf stjórnenda og skipulag og innihald skóla- og frístundastarfs.

Námskeiðið tekur til þátta er tengjast daglegum störfum skólastjórnenda og stjórnenda á vettvangi frítímans, s.s. rekstri, starfsmannasjórnun og faglegri forystu, starfsþróun og mati á skólastarfi. Nemendur fylgja einum stjórnanda í 4-5 daga sem dreifast á 4-6 vikur. Á vettvangi safna nemendur gögnum sem nýtast við vinnslu verkefna námskeiðsins. Nánari leiðbeiningar verða veittar við upphaf námskeiðsins.

Áður en nemendur fara á vettvang hafa þeir samband við umsjónarkennar sem í samráði við nemanda finnur stjórnanda til að fylgja. Í lok námskeiðs kynna nemendu verkefni sín á málstofu.

X

Lögfræði menntunar (STM218F)

Námskeiðið veitir nemendum innsýn í lagalega umgjörð skólastarfs og hvernig lög, reglur og siðferðileg viðmið móta starfsemi menntastofnana. Áhersla er lögð á tengsl lagalegra, uppeldisfræðilegra og stjórnsýslulegra þátta við faglega forystu og stefnumótun, með það að markmiði að styrkja stjórnendur í hlutverki sínu sem ábyrgir aðilar innan opinbers kerfis.

Þátttakendur vinna með raunveruleg dæmi úr skólastarfi þar sem lagaleg, fagleg og siðferðileg sjónarmið takast á. Með því að tengja fræðileg hugtök við eigin reynslu og greina flókin úrlausnarefni, öðlast þeir verkfæri og öryggi til að taka upplýstar og faglegar ákvarðanir. Námið byggir á virkri þátttöku, umræðum og ígrundunum. Markmiðið er að nemendur verði meðvitaðir um þau atriði sem skipta máli í úrlausn mála í skólastarfi.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs
Saga, 2. hæð
Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Opið kl. 09:00 - 15:00 alla virka daga
Sími: 525 5950 | Netfang: mvs@hi.is

Samfélagsmiðlar
Fylgdu okkur á FacebookInstagram og YouTube!

Saga, bygging HÍ.

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.