Skip to main content

Málþing: „Guð forði mér frá smáást“

Málþing: „Guð forði mér frá smáást“ - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. apríl 2024 14:00 til 16:00
Hvar 

Háskólatorg

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

„Guð forði mér frá smáást.“ Anna Karenina, Frú Bovary, Effí Briest og Alda Ívarsen í Tímaþjófinum.

Málþing á vegum Heimspekistofnunar Háskóla Íslands og Bókmenntafræðistofnunar HÍ í stofu 101 á Háskólatorgi, föstudaginn 12.apríl kl. 14:00-16:00.

Á þessu málþingi velta þýðendur, greinendur og höfundur fyrir sér ástríðum, frelsisþrá og harmi söguhetja sem stranda á skerjum siðferðis síns samtíma, eigin tálsýna og þrár. Hvernig geta örlög þessara söguhetja hreyft við okkur til að hugsa um skilyrði og möguleika ástríðna og ástar á okkar eigin tímum?

Tímaþjófurinn

  • Steinunn Sigurðardóttir: Öldu hafnað
  • Alda Björk Valdimarsdóttir: „Ég gekk á vatninu í augunum á þér“ 

Effi Briest

  • María Elísabet Bragadóttir: Hvernig er hægt að lifa sig inn í Effí Briest?
  • Arthúr Björgvin Bollason: Óborinn heimur í djúpinu

Anna Karenina

  • Rebekka Þráinsdóttir: „Og ljósið slokknaði að eilífu“: Eigingjörn og tortímandi ást í Önnu Karenínu.

Frú Bovary

  • Dagný Kristjánsdóttir: Úr eldinum í öskuna: Um miklar ástir kvenna í bókmenntum
  • Pétur Gunnarsson: „Þessi bók drepur mig!“