Bréf Ciceros og latnesk félagsmálvísindi
Árnagarður
Stofa 310
Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir flytur opinn fyrirlestur á vegum Fornfræðistofu Háskóla Íslands í stofu 310 í Árnagarði, föstudaginn 5. apríl kl. 15:30. Sólveig mun fjalla um rannsóknir sínar í erindi sem kallast „Bréf Ciceros og latnesk félagsmálvísindi.“ Verið öll velkomin.
Um fyrirlesarann
Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir lauk BA í grísku og latínu frá HÍ, meistaragraðu í klassískum fræðum frá Cambridge-háskóla og er núna er núna doktorsnemi í klassískum fræðum við Cambridge-háskóla.
Um erindið
Rómverski stjórnmála-og ræðumaðurinn Marcus Tullius Cicero, sem uppi var á fyrstu öld fyrir Krist, lét eftir sig gríðarmikið safn af persónulegum bréfum. Um er að ræða yfir 900 bréf, en innan safnsins hafa einnig varðveist bréf sem stíluð voru á Cicero frá um 30 öðrum mönnum. Í fyrirlestrinum er einblínt á þessi bréf, og hvernig þau má nýta til rannsókna á málbreytileika innan rómversks samfélags. Sem slík varpar rannsóknin frekara ljósi á félagslega stöðu innan Rómaveldis á síðlýðveldistímanum, sem og á latneskt mál og notkun þess.
Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir.