Skip to main content

Kynningarfundur – Niðurstöður PISA 2022

Kynningarfundur – Niðurstöður PISA 2022 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. desember 2023 15:00 til 17:00
Hvar 

Háskólatorg

Litla-Torg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun boða til opins kynningarfundar um niðurstöður PISA könnunarinnar 2022, þriðjudaginn 5. desember kl. 15:00 – 17:00 á Litla-Torgi, Háskóla Íslands. Á fundinum munu sérfræðingar kynna niðurstöður, greina þær og kynna tillögur að mögulegum framfaraskrefum.

Fundinum verður streymt. Hér er hlekkur á streymi  

Þau sem fylgjast með streymi geta komið á framfæri spurningum til frummælenda í gegnum vefinn. Vinsamlegast farið inn á Slido og setjið inn kóða viðburðarins: 4142463

Dagskrá:

15:00 Setning - Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

15:05 Ávarp -  Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Menntamálastofnunar 

15:15 Niðurstöður PISA 2022 - Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur, Menntamálastofnun

15:40 Stærðfræðilæsi: Rýnt í niðurstöður - Freyja Hreinsdóttir, prófessor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands

16:00 Lesskilningur: Rýnt í niðurstöður - Sigríður Ólafsdóttir, dósent, Menntavísindasviði Háskóla Íslands

16:10 Náttúruvísindalæsi: Rýnt í niðurstöður - Haukur Arason, dósent og Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands

16.20 Niðurstöður PISA: Næstu skref -  Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands

16:30 Umræða með þátttöku hagaðila  

16:50 Ávarp - Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra

Fundarstjóri: Berglind Gísladóttir, lektor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Vakin er athygli á að á vorönn 2024 munu Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands og Heimili og skóla standa fyrir röð málstofa þar sem fjallað verður nánar um niðurstöður PISA rannsóknarinnar á einstökum sviðum. 

Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun boða til opins kynningarfundar um niðurstöður PISA könnunarinnar 2022, þriðjudaginn 5. desember kl. 15:00 – 17:00 á Litla-Torgi, Háskóla Íslands. Á fundinum munu sérfræðingar kynna niðurstöður, greina þær og kynna tillögur að mögulegum framfaraskrefum. Fundinum verður streymt. Hér er hlekkur á streymi  
Þau sem fylgjast með streymi geta komið á framfæri spurningum til frummælenda í gegnum vefinn. Vinsamlegast farið inn á Slido og setjið inn kóða viðburðarins: 4142463

Kynningarfundur – Niðurstöður PISA 2022