Bylting í íþróttamælingum á Íslandi - Ný rannsóknarstofa opnuð
2. hæð Laugardalshallar (gengið inn um inngang F).
Ný rannsóknastofa námsbrautar í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands verður opnuð með pompi og prakt þriðjudaginn 31. október kl. 15 á 2. hæð Laugardalshallar (gengið inn um inngang F).
Rannsóknarstofan er búin fjölda nýrra rannsóknartækja sem stórauka möguleika til mælinga og rannsókna á líkamlegu atgervi íþróttafólks og almennings en búnaðurinn er eins og hann gerist bestur hjá fremstu íþróttaliðum og -þjóðum heims.
Dagskrá
15:00-15:05 Ávarp - Dr. Þórdís Lilja Gísladóttir, forseti Deildar heilsueflingar, íþrótta-, og tómstunda á Menntavísindasviði HÍ
15:05-15:15 Ávarp - Dr. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
15:15-15:35 Kynning á rannsóknastofu - Dr. Milos Petrovic, forstöðumaður rannsóknarstofunnar
15:35-15:45 Ávarp - Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
15:45-15:55 Nýjar áherslur í afreksmálum - Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ
15:55-16:00 Ávarp - Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ
16:05-16:10 Opnun rannsóknastofu - Dr. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ
16:10-16:30 Léttar veitingar og sýning á tækjabúnaði
.