Hvernig fjárhagsbókhald klúðrar mannauðsmálum
![Hvernig fjárhagsbókhald klúðrar mannauðsmálum - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__KRI8214_2.jpg?itok=AHqpqndm)
Háskólatorg
HT-102
Viðskiptafræðideild kynnir spennandi fyrirlestur Peter Cappelli, prófessors við Wharton háskóla í Bandaríkjunum sem ber heitið „How Financial Accounting Screws Up HR“.
Fyrirlesturinn fer fram föstudaginn 25. Ágúst kl. 10:30 – 12:00 í stofu HT-102 á Háskólatorgi. Þar mun hann fjalla um samnefnda grein sína sem birtist í Harvard Business Review á dögunum og bók sína, Our Last Important Asset: why the relentless focus on finance and accounting is bad for business and employees.
Cappelli hefur meðal annars verið nefndur einn af fimm áhrifamestu stjórnendum á sviði stjórnunar og skrifar hann reglulega um mannauðsmál í Harvard Business Review, The Wall Street Journal og HR Executive magazine. Hann er í forsvari fyrir stofnun mannauðsstjórnunar innan Wharton háskóla í Bandaríkjunum og hefur hann fengið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Hér er því um að ræða virkilega spennandi viðburð á sviði stjórnunar og hvetjum við öll áhugasöm til að mæta.
Viðskiptafræðideild kynnir spennandi fyrirlestur Peter Cappelli, prófessors við Wharton háskóla í Bandaríkjunum sem ber heitið „How Financial Accounting Screws Up HR“.
![Hvernig fjárhagsbókhald klúðrar mannauðsmálum](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/g6qzg.jpg?itok=xhuGM64E)