Málþing meistaranema á Menntavísindasviði
Hvenær
25. maí 2023 12:00 til 16:00
Hvar
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Klettur - stofur: 205-208
Nánar
Aðgangur ókeypis
Fjöldi áhugaverðra lokaverkefna meistaranema verða kynnt í dagana 25. maí á málþingi Menntavísindasviðs.
Málþing meistaranema er haldið um vetur, vor og haust og nú er komið að meistaranemum sem brautskrást í júní að kynna sín verk. Málþingið er haldið í Stakkahlíð.
Alls kynna um 30 meistaranemar verkefni sín, dæmi um heiti lokaverkefna eru:
- Reynsla og viðhorf kennara og barna til útiveru og útináms í leikskólastarfi
- Gagnsemi styrktarþjálfunar fyrir spretthlaupara: Áhrif styrktarþjálfunar á hraða spretthlaupara og forvarnargildi gagnvart meiðslum
- Gerð kennslumyndskeiða í stafrænu námi Greinargerð með stafrænu námsefni
- Heimalestur barna í lestrarvanda: Áhrif markvissrar hljóðaaðferðar í framkvæmd foreldra
- Tónlist notuð sem kennsluaðferð til máltöku annars máls
- Góðir hlutir gerast hægt: Starfendarannsókn á innleiðingu leiðsagnarnáms
- Námsorðaforði íslenskra grunnskólanema
- Þörf fyrir foreldrafræðslu: sjónarhorn foreldra 10–12 ára barna
Fjöldi áhugaverðra lokaverkefna meistaranema verða kynnt í dagana 25. maí á málþingi Menntavísindasviðs. Málþing meistaranema er haldið um vetur, vor og haust og nú er komið að meistaranemum sem brautskrást í júní að kynna sín verk. Málþingið er haldið í Stakkahlíð.