„Öðruvísi hér: Sérstöðuhyggja og landamæri Evrópu.“
![„Öðruvísi hér: Sérstöðuhyggja og landamæri Evrópu.“ - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_Askja-1.jpg?itok=qey5237G)
Háskólatorg
Litla Torg
Málþing í tilefni útgáfu bókanna: We are All Africans Here: Race, Mobilities and West Africans in Europe (Berghahn 2022) og Exceptionalism (Routledge 2021).
Sérstöðuhyggja hefur verið mikilvægur þáttur í þjóðarsjálfsmynd á Íslandi sem og í mótun þjóðernis annarstaðar, og í tengslum við umræðu um ytri landamæri Evrópu. Á málþinginu verða flutt fimm örerindi þar sem fyrirlesarar koma með hugleiðingar um þjóðerni í samtímanum og/eða landamæri Evrópu.
Fyrirlesarar: Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Kristinn Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Haukur Ingvarsson, nýdoktor, Bókmennta- og listfræðistofnun, Háskóla Íslands. Anna Wojtynska, nýdoktor í mannfræði við Háskóla Íslands. Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands.
Fundarstjóri er Ólafur Rastrick, deildarforseti Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands.
Viðburður fer fram á íslensku.
Málþing í tilefni útgáfu bókanna: We are All Africans Here: Race, Mobilities and West Africans in Europe (Berghahn 2022) og Exceptionalism (Routledge 2021).
![„Öðruvísi hér: Sérstöðuhyggja og landamæri Evrópu.“](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/k43d4.jpg?itok=3V_ESjM2)