Bæta góðar rannsóknir gæði háskólakennslu eða draga úr þeim?
![Bæta góðar rannsóknir gæði háskólakennslu eða draga úr þeim? - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/jaeger2.jpg?itok=L29CuZ3f)
Aðalbygging
Stofa 220
Hagfræðingurinn dr. David Jaeger, prófessor við Háskólann í St. Andrews í Skotlandi fjallar um rannsóknir sínar á því hvort öflugt rannsóknastarf í háskólum hafi neikvæð eða jákvæð áhrif á kennslu.
Innan flestra háskólastofnana er fengist bæði við kennslu og rannsóknir. Hins vegar er tiltölulega lítið vitað um það hvað áhrif hágæðarannsóknir hafa á hágæðakennslu, aðallega vegna skorts á gögnum. Dr. Jaeger ákvað ásamt samstarfssfólki sínu við Háskólann í St. Andrews að ráða bót á því og rýndi í samband rannsókna og kennslu út frá gögnum frá Bretlandi. Í erindinu kynnir hann rannsóknina og niðurstöður hennar sem sýna m.a. að sterkt og jákvætt samband er á milli birtinga rannsókna og ánægju stúdenta með kennslu.
Viðburðurinn er á vegum ConCIV-rannsóknarhópsins og Hagfræðideildar og verður á ensku.
Dr. David Jaeger frá St. Andrews
![Bæta góðar rannsóknir gæði háskólakennslu eða draga úr þeim?](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/brdj9.jpg?itok=UgB7CBgk)