Málþing til heiðurs Gísla Pálssyni
![Málþing til heiðurs Gísla Pálssyni - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_200507_003.jpg?itok=SrwZYhxW)
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrarsalur
Mannfræðingurinn Gísli Pálsson varð sjötugur í lok árs 2019 og lét af störfum hjá Háskóla Íslands eftir farsælan feril. Að því tilefni er efnt til málþings honum til heiðurs. Samstarfsmenn, vinir og fyrrum nemendur munu fjalla um störf hans og rannsóknir og segja frá persónulegum kynnum og rifja upp skemmtilega atburði.
Málþingið verður í hátíðarsal Veraldar þann 29. apríl og er öllum opið.
Opnunarávarp flytur Jónína Einarsdóttir deildarforseti Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar.
Kynnir er Katrín Anna Lund.
Boðið verður upp á léttar veitingar í kjölfar málsþings.
Dagskrá:
16:30 - 16:40
Jónína Einarsdóttir, inngangsorð
16:40 - 17:30
Þórólfur Þórlindsson - Framlag og samhengi. Örfá orð tileinkuð Gísla
Kristín Loftsdóttir - Haldið í kenningalegu böndin
Nemendur Gísla; Agnar Helgason og Kristín Erla Harðardóttir - Mentorinn Gisli Pálsson
17:30 - 18:00
Tim Ingold, The Man Who Overtook Himself: The Academic Odyssey of Gisli Palsson
Gísli Pálsson mannfræðingur
![Málþing til heiðurs Gísla Pálssyni](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/jgz7w.jpg?itok=Tpayl-x8)