Ágæti umsækjandi Þakka þér fyrir að sækja um grunnnám við Háskóla Íslands. Við bendum á að þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ í umsóknagáttinni. Þú ferð inn í gáttina með því að nota rafræn skilríki eða netfang og lykilorð sem þú bjóst til við skráningu í umsóknagáttina. Umsækjendur um Íslensku sem annað mál, hagnýtt nám, þurfa að standast inntökupróf í íslensku til að sýna fram á færni sem samsvarar A1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum áður en námið hefst. Hér má finna upplýsingar um lágmarkskröfur, tímasetningu, gerð prófs og annað sem tengist inntökuprófinu. Umsækjendur um Íslensku sem annað mál, BA og Íslenskustoð þurfa að standast inntökupróf í íslensku sem sýnir fram á færni í íslensku á stigi A2+ samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Hér má finna upplýsingar um lágmarkskröfur, tímasetningu, gerð prófs og annað sem tengist inntökuprófinu. Áríðandi er að skoða vel innihald felliglugganna hér að neðan, í þeim er að finna mikilvægar upplýsingar svo unnt sé að afgreiða umsókn þína. Fylgigögn með umsókn Fylgigögn þurfa að berast Háskóla Íslands fyrir lok umsóknarfrests 20. maí. Ef ekki er um hefðbundið stúdentsprófsskírteini að ræða þarf að skila inn staðfestu afriti af útskriftarskírteini (lokapróf) frá framhaldsskóla eða námsferilsyfirliti/skírteini frá öðrum háskóla. Leiðir til að skila staðfestu afriti af útskriftarskírteini (lokapróf) má sjá hér. Hér má finna sértækar kröfur um skil fylgigagna eftir upprunalandi gagnanna. Einnig er hægt að skila inn gögnum á Þjónustuborð Háskólatorgs. Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu eða +60 ECTS einingum frá HÍ eftir 1980 þurfa ekki að skila staðfestu afriti af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini. Umsækjendur með erlent ríkisfang (utan Norðurlanda) þurfa að skila vottorði um lögheimilissögu á Íslandi, form nr. C-122 frá Þjóðskrá Íslands. Afgreiðsla umsóknar Leitast verður við að afgreiða umsóknir eins fljótt og auðið er eða í síðasta lagi viku eftir umsóknarfrest að því gefnu að öll fylgigögn hafi borist. Að lokinni afgreiðslu umsókna birtast nánari upplýsingar inn í umsóknagáttinni og þeir umsækjendur sem fara í inntökuprófið fá einnig frekari upplýsingar sendar með tölvupósti áður er prófið fer fram. Svar við umsókn birtist einungis rafrænt inni í umsóknagáttinni undir „Yfirlit umsókna“. Til að skrá þig inn í umsóknagátt Háskóla Íslands notar þú rafræn skilríki eða netfangið þitt og lykilorðið sem þú bjóst til þegar þú stofnaðir fyrst aðgang. Próftökugjald Fljótlega eftir að umsóknarfresti lýkur mun möguleiki til greiðslu á próftökugjaldinu, 15.000 kr. birtast inni í umsóknagáttinni undir flipanum „Yfirlit umsókna“. Greiða þarf gjaldið í síðasta lagi fyrir lok á eindaga 3. júní. Hafðu strax samband við Nemendaskrá ef þú færð ekki upp greiðslumöguleikann í umsóknagáttinni, netfang: umsokn@hi.is. Athugið að próftökuréttur er háður settum greiðslufresti og próftökugjaldið er óendurkræft hætti umsækjandi við þátttöku. Greiðsla skrásetningargjalds HÍ og notandanafn og lykilorð að Uglu Verði umsóknin þín samþykkt þarf að greiða skrásetningargjald HÍ fyrir eindaga til að staðfesta skólavist þína. Þú greiðir í umsóknagáttinni og er hægt að greiða gjaldið með greiðslukorti (debet- eða kreditkorti). Eindagi gjaldsins vegna umsóknar fyrir haustmisseri er 4. júlí. Skrásetningargjaldið er ekki endurkræft. Notendanafn og lykilorð Eftir að þú hefur gengið frá greiðslu skrásetningargjaldsins getur þú sótt þér notandanafn og lykilorð að Uglu í umsóknagáttinni. Ef þörf er á enn frekari upplýsingum þá er hægt að senda tölvupóst á umsokn@hi.is. facebooklinkedintwitter