Skip to main content

Kynningarfundur: AWE-nýsköpunarhraðall fyrir konur

Kynningarfundur: AWE-nýsköpunarhraðall fyrir konur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. desember 2021 12:00 til 13:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskóli Íslands stendur í vetur fyrir nýsköpunarhraðli fyrir konur undir merkjum AWE eða Academy for Woman Entrepreneurs í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem hraðallinn er haldinn.

Nýsköpunarhraðallinn styður konur við að þróa viðskiptahugmyndir sínar og gerir þeim betur kleift að stofna fyrirtæki á grundvelli þeirra. 

Verkefnið er á vegum bandarískra stjórnvalda og er í boði víða um heim. Það samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Managament við Ríkisháskólann í Arizona og vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um.

Virkjum nýsköpunarkraft kvenna!

Kynningarfundur verður haldinn 30. desember 2021 kl. 12:00 í netstreymi. Skráðu þig á kynningarfund hér. 

Kynningarfundurinn í netstreymi.

Eftir kynnningarfundinn verður opnað fyrir umsóknir og rennur umsóknarfrestur út 17. janúar 2022. Sjá nánar. 

Kynningarfundur. AWE Nýsköpunarhraðall fyrir konur. 

Kynningarfundur. AWE Nýsköpunarhraðall fyrir konur