Skip to main content

NORSMA - Ráðstefna um stærðfræðimenntun

NORSMA - Ráðstefna um stærðfræðimenntun - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. nóvember 2021 8:00 til 5. nóvember 2021 16:00
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dagana 4. og 5. nóvember verður ráðstefnan Equal access for all learners to quality mathematics education haldin á Menntavísindasviði. Norrænir rannsakendur kynna þar og ræða rannsóknir sínar um stærðfræði fyrir alla og ólíkar þarfir nemenda í stærðfræðinámi. Markmiðið er að vinna í anda Heimsmarkmiðs Sameinuðu þjóðanna númer 4 og stuðla að því að allir öðlist jafnan rétt til stærðfræðináms.  

NORSMA ráðstefnur eru haldnar á tveggja ára fresti á Norðurlöndunum og sækja þær bæði rannsakendur og kennarar til að ræða rannsóknir á ólíkum þörfum nemenda í stærðfræðinámi.  

Nánari upplýsingar á vef NORSMA.

Dagana 4. og 5. nóvember verður ráðstefnan Equal access for all learners to quality mathematics education haldin á Menntavísindasviði.

NORSMA - Ráðstefna um stærðfræðimenntun