Miðbiksmat í iðnaðarverkfræði -Ingunn Ýr Guðbrandsdóttir

Árnagarður
Stofa 422
Heiti ritgerðar: Sanngirni og sjálfbærni í virðiskeðju eldislax.(Fairness and sustainability in the farmed salmon value chain)
Doktorsefni: Ingunn Ýr Guðbrandsdóttir
Doktorsnefnd:
Guðmundur Valur Oddsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Hlynur Stefánsson, dósent á tæknisviði Verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík
Guðrún Ólafsdóttir, vísindamaður við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Sigurður Grétar Bogason, gestadósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands.
Ágrip
Verkefnið gengur út á að rannsaka virðiskeðju eldislax með sérstaka áherslu á sanngirni í viðskiptum aðila í keðjunni (e. interorganizational fairness) og þætti sem hafa áhrif á sjálfbærni. Vandamál tengd skorti á sanngirni í virðiskeðjum matvæla valda stjórnvöldum stöðugt meiri áhyggjum þar sem þau geta verið sérstaklega erfið viðfangs vegna takmarkaðs samningsvalds (e. bargaining power) framleiðenda í viðskiptum við stærri kaupendur (t.d. stórmarkaði), takmarkaðs geymsluþols matvæla, langs framleiðsluferils og ólíkra óvissuþátta (t.d. veðurs). Áhyggjuefni tengd sjálfbærni í virðiskeðju eldislax eru nátengd umhverfisáhrifum eldisins, sem hafa áhrif á bæði framboð og eftirspurn með því að móta regluverkið, setja takmörk á framleiðslu og hafa áhrif á neytendahegðun. Markmiðið með rannsókninni er að að öðlast skilning á því hvaða ólíku þættir í stjórnun fyrirtækja (innri og ytri þættir) hafa áhrif á sanngirni og þar með hvernig hægt er að auka sanngirni innan virðiskeðja og stuðla að aukinni sjálfbærni til framtíðar. Loka markmiðið er að nota þessar upplýsingar til að auðvelda ákvarðanatöku við stefnumörkun stjórnvalda í tengslum við sanngirni. Til að ná markmiðum verkefnisins er þróað hugtakalíkan (e. conceptual model) af virðiskeðjunni með áherslu á viðskiptasambönd ólíkra aðila. Þetta hugtakalíkan er notað til að greina mögulegar íhlutanir stjórnvalda til að auka sanngirni og sjálfbærni í keðjunni og er grunnur að hermilíkani af kerfinu sem nota má til að prófa ólíkar íhlutanir.
Ingunn Ýr Guðbrandsdóttir
