Forréttindi, forréttindablinda og jafnrétti í skólastarfi

Stakkahlíð / Háteigsvegur
Kennarasamband Íslands og Menntavísindasvið Háskóla Íslands bjóða þér á stefnumót um jafnrétti í skóla- og frístundastarfi 9.-12. nóvember. Fjallað verður um jafnrétti frá ýmsum hliðum, svo sem um kennslufræði, skólamenningu, orðræðu og forréttindablindu.
Samtal um jafnrétti í skólastarfi
Skapa á samræðuvettvang þar sem ræða á jafnrétti í skóla- og frístundastarfi og leiðir sem nýta má til að skapa öruggari rými fyrir nemendur svo þeir megi njóta réttlætis og blómstra á sínum forsendum. Stefnumótið verður með þjóðfundarformi þar sem þátttakendur ræða ólík málefni í hópum þar sem hópstjórar eru sérfróðir um jafnrétti og jaðarsetningu í skólastarfi.
Verkefnahlaðborð
Til sýnis ýmis kennslutengd jafnréttisverkefni. Þátttakendur eru hvattir til að koma með sín verkefni á hlaðborðið.Óformlegt spjall og veitingar
ATHUGIÐ! Vegna mikillar fjölgunar á COVID-smitum undanfarna daga verðum við að færa staðstefnumótiðyfir á netið, til að tryggja öryggi og velferð allra þátttakenda. Slóð á fjarfund.