Lykilfyrirlestur Menntakviku: Tómstundafræði, útinám og heildræn menntun

Tómstundafræði, útimenntun og heildræn menntun
Námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir og verður lykilfyrirlestur Menntakviku helgaður faginu. Mark Leather, dósent við St Mark & St John Háskólann í Plymouth í Bretlandi, flytur erindi um útimenntun og aðferðir heildrænar menntunar.
Dagskrá
15:30 Ársæll Már Arnarsson, deildarforseti Deildar heilsueflingar, íþrótta og tímstunda – kynnir dagskrá
15:35 - Nám í tómstunda- og félagsmálafræði - Sýn nemenda
Guðmunda Bergsdóttir, BA-nemi í tómstunda - og félagsmálafræði
Anna Steinsen, M.Ed-nemi í tómstunda- og félagsmálafræði
15:45 - Leisure Studies, útimenntun and holistic education: Talking, walking and playing
Dr. Mark M. Leather, Associate Professor of Education at the University of St Mark & St John, Plymouth, UK
16:25 - Hugur, hönd og hjarta - Nám í nútíð til framtíðar.
Örhugleiðing um nám í tómstunda- og félagsmálafræði á 20 ára afmæli námsbrautar.
Eygló Rúnarsdóttir, formaður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði
16:30 - Gleym mér ei!
Samsöngur viðstaddra undir leiðsögn Sigvalda Helga Gunnarssonar, tónlistarmanns og tómstunda- og félagsmálafræðings
Um lykilfyrirlesturinn
Í erindinu mun Mark segja stuttlega frá þremur hugmyndum sem eru sprottnar úr rannsóknum hans og starfi sem háskólakennari. Varpað verður ljósi á áþreifanlega og fagurfræðilega reynslu úti í náttúrunni og bendir Mark á vægi kennslu til að veita tækifæri til „samtals“ – í líkamlegu, persónulegu félagslegu samhengi.
Í öðru lagi leggur Mark áherslu á hæga kennslu til að þróa skynfæri okkar í meira mæli. Slíkt ögrar gildum og hefðum í nútíma háskólum, annasömu námi og hversdagsleika.
Að lokum fjallar Mark um kennslufræði leiks en hann er þeirrar skoðunar að gamansöm verufræði geti stuðlað að ánægju, gleði og heilbrigði í háskólastarfi. Þótt kennsluaðferðir hans séu oft og tíðum gáskafullar þá hafa þau skýr menntunarleg markmið og ákveðinn tilgang.
Fyrirlesturinn verður fluttur á enslu í Bratta en einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi.
Í erindinu mun Mark segja stuttlega frá þremur hugmyndum sem eru sprottnar úr rannsóknum hans og starfi sem háskólakennari.
