Rannsóknarmat með gleiðlinsu

Veröld - Hús Vigdísar
VHV-023
Ráðgjafarnefnd Gæðaráðs íslenskra háskóla um mat á rannsóknum (e. REAC) stendur fyrir opnum fundi þann 1. október kl 14-16 í fyrirlestrarsal Veraldar - húss Vigdísar Finnbogadóttur. Fundurinn verður í beinu streymi
Dagskrá fundarins:
- Skúli Skúlason, fyrrverandi rektor Háskólans á Hólum, mun segja stuttlega frá því helsta sem kom út úr netfundi 10. september sl. um mat á rannsóknum. Sjá nánar um þann fund hér.
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda og prófessor við Háskóla Íslands, mun segja frá endurskoðun á rannsóknarmati opinberra háskóla sem nú stendur yfir.
- Pallborðsumræður með öllum rektorum íslenskra háskóla eða fulltrúum þeirra.
- Opnar umræður.
Fundarstjóri verður Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir og fundarritari (e. rapporteur) verður Áslaug Helgadóttir, gæðastjóri hjá HÍ.
Frekari upplýsingar um fundinn
Fundurinn fer fram á íslensku.
Gæðaráð íslenskra háskóla býður upp á léttar veitingar að fundi loknum.
Öll velkomin.
Ráðgjafarnefndar Gæðaráðs íslenskra háskóla um mat á rannsóknum (e. REAC) stendur fyrir opnum fundi þann 1. október kl 14-16 í fyrirlestrarsal Veraldar - húss Vigdísar Finnbogadóttur. Fundurinn verður í beinu streymi
