Skip to main content

Hagkvæm skattlagning launa og fjármagns

Hagkvæm skattlagning launa og fjármagns - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. október 2021 11:30 til 12:30
Hvar 

Oddi

101 og í streymi

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrirlesari: Arnaldur Sölvi Kristjánsson hagfræðingur hjá ASÍ

 

Fjallað verður um hagkvæma skattlagningu launa og fjármagns þegar fjárfestingarkostir eru misarðbærir. Útgangspunktur þeirrar greinar er að hæfileikar á vinnumarkaði eru mismunandi og það er ríkisins að endurdreifa þeim gæðum sem myndast í samfélaginu á sem hagkvæmastan máta. Kenning nefnd eftir Atkinson og Stiglitz gefur til kynna að undir vissum kringumstæðum eigi ekki að skattleggja fjármagnstekjur. Helsta niðurstaða erindisins er að kenning Atkinson og Stiglitz stenst ekki þegar arðsemi fjárfestinga er mismikil. Þá er hagkvæmt að skattleggja laun og fjármagnstekjur. Hagkvæmni þess að skattleggja fjármagnstekjur felst í því að það er óhagkvæmt að endurdreifa gæðum einvörðungu í gegnum launatekjuskatt. Undir vissum kringumstæðum á einnig að skattleggja eignir. Í erindinu er byggt á fræðilegu líkani sem byggir m.a. á líkani Mirrlees um hagkvæmustu skattlagningu. Í líkaninu hafa einstaklingar ólíka hæfileika í að fjárfesta og mismunandi getu til að afla launa á vinnumarkaðnum. Arðsemi fjárfestingar eykst eftir því sem meiri pening er varið í fjárfestingarráðgjöf og eftir því sem meiri tíma er varið í að fjárfesta.

 

Arnaldur Sölvi Kristjánsson er hagfræðingur á skrifstofu Alþýðusambands Íslands. Hann er með doktorsgráðu í hagfræði frá Háskólanum í Osló ásamt grunn- og framhaldsnám í hagfræði frá Háskóla Íslands og Toulouse School of Economics. Undanfarin ár hefur hann starfað á efnahagsskrifstofu norska fjármálaráðuneytisins en einnig unnið sem sérfræðingur hjá Þjóðmálastofnun við Háskóla Íslands.

 

Hér er hlekkur á grein Arnaldar sem erindið byggir á.

 

Hlekkur á streymi 

Arnaldur Sölvi Kristjánsson hagfræðingur 

Hagkvæm skattlagning launa og fjármagns