Umbreyting hnattrænnar heilsu

Fyrirlesari: Stefan Swartling Peterson, Karolinska institutet, Svíþjóð.
Fræðigrein um hitabeltissjúkdóma var upphaf að því sem við köllum í dag hnattræn heilsa. Vaxandi umræða er þó um mikilvægi þess að af-nýlenduvæða hugtakið. Núverandi vangeta til þess að koma í framkvæmd aðgerðum sem byggja á nú þegar þekktum og gagnreyndum gögnum er einnig í umræðunni, sérstaklega mikilvægt á svæðum þar sem mæðra- og barnadauði er hár. Í fyrirlestri sínum mun Stefan Swartling Peterson við Karolinska institutet, Svíþjóð, stuttlega draga upp mynd af þróun fræðigreinarinnar hnattræn heilsa. Auk þess mun hann velta fyrir sér umbreytingu hugtaksins í Nær-hnattræn sjálfbær heilsa og hvað gæti falist í því.
Nordic Global Health Talks
Fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði kl. 08:00 GMT getur þú farið inn á rafræna málstofu sem er skipulögð af norrænum háskólum þar sem hnattræn heilsa er til umræðu. Málstofurnar eru á Zoom og aðgangur er ókeypis og frjáls öllum sem hafa áhuga á fræðigreininni og rannsóknum á því sviði við norræna háskóla, en forskráning er nauðsynleg, hér: https://ucph-ku.zoom.us/webinar/register/WN_HXX8WspxRSCSl5PpgDAsmA
Hver málstofa er um 45 mín, þ.e. 20-30 mín erindi og svo spurningar og umræður.
Umbreyting hnattrænnar heilsu
Fyrirlesari: Stefan Swartling Peterson, Karolinska institutet, Svíþjóð
