Taktu hluta af náminu erlendis - Örkynning á Nýnemadögum

Hvenær
2. september 2021 12:00 til 12:20
Hvar
Á netinu
Nánar
Aðgangur ókeypis
Nýnemum og öðrum nemum gefst kostur á að kynna sér spennandi tækifæri á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fimmtudaginn 2. september kl. 12.00-12.20. Fulltrúar frá Alþjóðasviði kynna möguleika á námsdvöl um allan heim, þá styrki sem í boði eru og hvernig umsóknarferli er háttað.
Háskóli Íslands starfar með yfir 400 hundruð háskólum víða um heim og árlega taka fjölmargir nemendur hluta af námi sínu erlendis. Nemendur geta fengið skiptinám metið inn á feril sinn við HÍ og í sumum tilfellum er starfsþjálfun metin til eininga.
Kynningin er liður í dagskrá Nýnemadaga vikuna 30. ágúst - 3. september.
Háskóli Íslands starfar með yfir 400 hundruð háskólum víða um heim og árlega taka fjölmargir nemendur hluta af námi sínu erlendis.
