Skip to main content

Ánægja ferðamanna í Landmannalaugum

Ánægja ferðamanna í Landmannalaugum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. ágúst 2021 12:00 til 13:00
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Útgáfuboð og málstofa í tilefni af útkomu fyrsta tölublaðs átjánda

árgangs hins ritrýnda TVE - Tímarits um viðskipti og efnahagsmál,

miðvikudaginn 25. ágúst kl. 12:00 – 13:00 í Norræna húsinu.

 

Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla

Íslands kynnir grein sína og álit gefa Jóhannes Þór Skúlason

framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Jón Páll Baldvinsson

formaður FETAR – sérsamtaka ferðaþjónustufyrirtækja í

hálendisferðum.

Fundi stýrir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ, sem hefur umsjón með útgáfu TVE.

Fyrirspurnir og umræður að erindum loknum og boðið upp á kaffiveitingar í fundarlok.

 

Öll velkomin en salurinn rúmar 40 manns miðað við eins metra regluna sem enn verður í gildi að óbreyttu. Þeim sem vilja tryggja sér sæti er bent á að senda tölvupóst um mætingu á netfangið

stjornsyslaogstjornmal@hi.is.

 

Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinu streymi sem nálgast má á facebook viðburðinum hér.

Anna Dóra Sæþórsdóttir prófessor í ferðamálafræði við HÍ

Ánægja ferðamanna í Landmannalaugum