Námstækninámskeið: Vinnubrögð í háskólanámi
Hvenær
1. september 2021 9:00 til 2. september 2021 12:00
Hvar
Háskólatorg
Ht-301
Nánar
Aðgangur ókeypis
Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands býður nemendum upp á gagnlegt námskeið þar sem farið er yfir kjarnaatriði varðandi góðar námsvenjur og öfluga námstækni. Farið verður yfir þætti eins og markmiðasetningu, tímastjórnun, lestur og glósuaðferðir. Nemendur leysa verkefni og prófa nýjar aðferðir og eru hvattir til þess að nýta sér fjölbreyttar leiðir í námi.
Þetta námskeið er haldið dagana 1. og 2. september kl. 9 - 12 í Ht-301 á Háskólatorgi.
Aðeins 8 pláss eru í boði og því er nauðsynlegt að skrá sig hér.