Skip to main content

Leiðin til lýðræðis: Opinn fundur með Svetlönu Tikhanovskaya

Leiðin til lýðræðis: Opinn fundur með Svetlönu Tikhanovskaya - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. júlí 2021 15:00 til 16:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur VHV 023

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Svetlana Tikhanovskaya, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Belarús, bauð sig fram gegn sitjandi forseta, Alexander Lukashenko, í forsetakosningum í landinu í fyrra eftir að eiginmaður hennar var fangelsaður. Lukashenko var lýstur sigurvegari en sú niðurstaða hefur verið mjög umdeild og hefur hann verið sakaður um að hafa haft rangt við í kosningunum. Svetlana flúði land í kjölfar fjöldamótmæla í Belarús og fékk hæli í Litháen ásamt börnum sínum.

Ísland hefur um árabil tekið þátt í þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Belarús vegna víðtækra og grófra mannréttindabrota þar í landi. Aðgerðirnar voru síðast hertar nú í júní í kjölfar þvingaðrar lendingar farþegaþotu Ryanair í Minsk og handtöku Raman Pratasevich og Sofiu Sapage. Sú atburðarás endurspeglar afstöðu þarlendra stjórnvalda til alþjóðlegra skuldbindinga um flugsamgöngur, mannréttindi og fjölmiðlafrelsi.

Hvert stefnir Belarús og hverjar eru framtíðarhorfur lýðræðis í landinu?

Opnunarávarp: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra

Þátttakendur í pallborði:

  • Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði við Háskóla Íslands
  • Rósa Björk Brynjólfsdóttir, alþingismaður og fyrrv. formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins
  • Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og blaðamaður

Umræðustjóri: Fanney Birna Jónsdóttir, blaðamaður

Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir

Opinn fundur með Svetlönu Tikhanovskaya föstudaginn 2. júlí kl. 15.00 - 16.00 í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar

Leiðin til lýðræðis: Opinn fundur með Svetlönu Tikhanovskaya