Opnun nýrrar íslensk-franskrar veforðabókar

Veröld - Hús Vigdísar
Viðburður lokaður en sendur út í streymi.
Lexía, ný íslensk-frönsk veforðabók, verður opnuð við hátíðlega athöfn í Veröld – húsi Vigdísar þann 16. júní. Vigdís Finnbogadóttir mun opna bókina og Roselyne Bachelot menningar- og samskiptamálaráðherra Frakklands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, eru meðal þeirra sem flytja ávarp við opnunina.
Um lokaðan viðburð er að ræða en hann verður sendur út í beinni útsendingu.
Dagskrá
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
Roselyne Bachelot-Narquin, menningarmálaráðherra
Graham Paul, sendiherra Frakklands á Íslandi, og Olivier Cadic, öldungardeildarþingmaður
Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, og Ásdís R. Magnúsdóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
Entr‘acte de Jacques Ibert
Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari, Þröstur Þorbjörnsson, gítarleikari
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti
Þórdís Úlfarsdóttir, ritstjóri og Halldóra Jónsdóttir, verkefnisstjóri
Rósa Elín Davíðsdóttir, ritstjóri
Jean-Christophe Salaün, þýðandi og starfsmaður LEXÍU
Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands í Frakklandi
Kynnir: Eyjólfur M. Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands
Athöfnin fer fram á íslensku og frönsku
Lexía er samstarfsverkefni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur (SVF) í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (SÁM). Þórdís Úlfarsdóttir, er aðalritstjóri orðabókarinnar og Halldóra Jónsdóttir er verkefnisstjóri fyrir hönd SÁM. Rósa Elín Davíðsdóttir, orðabókafræðingur við SVF, er ritstjóri franska hluta orðabókarinnar. Aðrir í ritstjórn orðabókarinnar eru François Heenen, Jean-Christophe Salaün og Ólöf Pétursdóttir.
Vigdís Finnbogadóttir hefur frá upphafi verið mikill hvatamaður að útgáfu bókarinnar en hún hefur alla tíð haldið á lofti mikilvægi tungumála og tungumálanáms. Vigdís var landsþekktur frönskukennari og frumkvöðull í tungumálakennslu í íslensku sjónvarpi og hefur gegnt starfi velgjörðarsendiherra UNESCO í tungumálum frá árinu 1998.
Lexía, ný íslensk-frönsk veforðabók, verður opnuð við hátíðlega athöfn í Veröld – húsi Vigdísar þann 16. júní. Vigdís Finnbogadóttir mun opna bókina og Roselyne Bachelot menningar- og samskiptamálaráðherra Frakklands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, eru meðal þeirra sem flytja ávarp við opnunina.
