4. þáttur - Heilsuhegðun ungra Íslendinga
Heilsuhegðun ungra Íslendinga er nýtt vísindahlaðvarp um heilsu og lifnaðarhætti ungs fólks hér á landi. Hlaðvarpið byggir á samnefndri langtímarannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands. Í hverjum þætti eru fengnir til samtals vísindamenn sem koma að rannsókninni og ræða þeir niðurstöður sínar á mannamáli við ungt fólk á framhaldsskólaaldri.
Í fjórða þætta fjallar dr. Ársæll Arnarson prófessor í tómstunda- og félagsmálafræði um félagsleg líðan og heilsu. Þær Bára Björg Ólafsdóttir og Björk Bjarnadóttir úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ spjalla við hann um einelti, samfélagsmiðla og hvað það merkir að vera unglingur. Varpað er upp spurningum um hvernig efla megi og styrkja þessa mikilvægu heilsufarsþætti hjá ungu fólki í nútímaþjóðfélagi.
Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu streymisveitum og á heilsuhegðun.hi.is
Heilsuhegðun ungra Íslendinga er nýtt vísindahlaðvarp um heilsu og lifnaðarhætti ungs fólks hér á landi.