Pödduskoðun í Elliðaárdal - Með fróðleik í fararnesti

Brottför kl. 18 við gömlu rafstöðina við Elliðaár.
Enn á ný fagna stórir sem smáir. Í vændum er nefnilega skordýraskoðun á vegum Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna í Elliðaárdal miðvikudaginn 9. júní kl. 18. Rýmkun stjórnvalda á samkomuhömlum gerir þetta kleift en viðburðurinn er í röð sem kallast Með fróðleik í fararnesti sem er samstarfsverkefni FÍ og HÍ. Gísli Már Gíslason, skordýrasérfræðingur frá Háskóla Íslands, fræðir okkur um heim skordýranna.
Vegna samkomutakmarkana þurfa þátttakendur nauðsynlega að skrá sig á heimasíðu Ferðafélags Íslands.
Pödduskoðunin er einn allra vinsælasti viðburðurinn í fróðleiksröðinni þar sem fjölskyldufólk safnast saman við gömlu rafstöðina í Elliðaárdal og fær hjálp við að greina og skoða pöddur í smásjám. Að þessu sinni er því miður ekki hægt að nota smásjárnar vegna smithættu.
Vísindamenn Háskólans mæta engu að síður með tól og tæki en krakkar og fullorðnir er hvött til að koma með stækkunargler sem gerir þetta vísindaævintýri miklu skemmtilegra. Að þessu sinni er því miður ekki hægt að nota smásjárnar vegna smithættu.
Viltu sjá pöddur í návígi? Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum. Gísli Már Gíslason, skordýrasérfræðingur frá Háskóla Íslands, fræðir okkur um heim skordýranna. Takið með ílát og stækkunargler ef þið eigið.
