Skip to main content

Miðbiksmat í iðnaðarverkfræði - Helga Guðrún Óskarsdóttir

Miðbiksmat í iðnaðarverkfræði - Helga Guðrún Óskarsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. maí 2021 10:00 til 12:00
Hvar 

VR-II

Stofa 157

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Titill: Framleiðni þekkingarstarfsmanna

Doktorsefni: Helga Guðrún Óskarsdóttir

Doktorsnefnd:
Guðmundur Valur Oddsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Rögnvaldur J. Sæmundsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Jón Þór Sturluson, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Ágrip

Flest störf í dag krefjast þess að unnið sé með þekkingu. Þeir sem vinna í slíkum störfum eru kallaðir þekkingarstarfsmenn. Þekkingarstarfsmenn hafa mikla sérfræðiþekkingu, menntun eða reynslu og hafa þann megin tilgang að búa til, deila eða nota þekkingu í starfi sínu. Við erum háð þekkingarstarfmönnum til að viðhalda sterku efnahagskerfi og fyrir nýsköpun sem getur breytt heiminum. Það er þörf á heildrænni nálgun þegar rannsaka á hvað hefur áhrif á framleiðni þekkingarstarfsmanna og hvernig á að stýra og bæta hana. Þær rannsóknir sem til eru skoða mismunandi einangraða þætti vandamálsins. Það er til mikið magn af rannsóknum á mörgum mismunandi rannsóknarsviðum sem kafa djúpt ofan í smáatriði af ýmsum þáttum sem hafa áhrif á framleiðni þekkingarstarfsmanna. Það er því erfiðara að fá heildræna sýn. Fyrsta skrefið í leit af heildrænni sýn er að greina grundvallaratriði framleiðni þekkingarstarfsmanna með því að horfa á vandamálið óhlutstætt. Það er ekki nóg að horfa aðeins á þá þætti sem hafa áhrif á framleiðni þekkingarstarfsmanna frá sjónarhorni skipulagsheildarinnar. Það þarf að skoða sjónarhorn einstaka þekkingarstarfsmanna líka. Aðeins sjálfir þekkingarstarfsmennirnir vita hvaða þekkingu þeir hafa og hvernig hún nýtist best og taka hana með sér þegar þeir skipta um störf. Þessi rannsókn reynir að finna og skilgreina heildræn kerfi sem hafa áhrif á framleiðni þekkingarstarfmanna með mjúkri kerfisnálgun og fræðilegri samantekt.

Helga Guðrún Óskarsdóttir

Miðbiksmat í iðnaðarverkfræði - Helga Guðrún Óskarsdóttir