Skip to main content

Nokkuð súr? Áhrif lífsstílsdrykkja á tannheilsu

Nokkuð súr? Áhrif lífsstílsdrykkja á tannheilsu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. júní 2021 12:00 til 12:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilbrigðisvísindasvið efnir til opinna fyrirlestra fyrir almenning í tengslum við 20. líf- og heilbrigðivísindaráðstefnuna. Þar verður fjallað um spennandi málefni úr líf- og heilbrigðisvísindum á aðgengilegan hátt. Fyrirlestrunum verður streymt.

Inga B. Árnadóttir, prófessor við Tannlæknadeild, mun fjalla um tannheilsu, glerung tanna og forvarnir undir yfirskriftinni:

Nokkuð súr? Áhrif lífsstílsdrykkja á tannheilsu

Glerungur tanna er sterkasti vefur líkamans, yfirborð sem endurnýjar sig ekki og getur endurkalkað ef yfirborð þess er ekki rofið. Sjúkdómar sem herja á glerung tanna eru tannáta og glerungseyðing. Orsök tannátu er sykur sem tannsýkla breytir í sýru en glerungseyðing er efnafræðilegt ferli frá súru umhverfi tannarinnar.

Glerungseyðing hefur vaxið meðal ungra einstaklinga á síðustu árum og er orkudrykkjaneysla talin vera ein aðalorsökum þess. Í erindinu verður fjallað um skilgreiningu á sjúkdómnum, faraldsfræði, og mælingar Tannlæknadeildar á orkudrykkjum sem eru á íslenska markaðnum.

Um Ingu B. Árnadóttur

Inga Bergmann Árnadóttir er prófessor við Tannlæknadeild á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Helstu rannsóknir Ingu hafa tengst tannheilsu og lífstíl barna og unglinga og hún hefur tekið þátt í fjölda íslenskra og alþjóðlegra rannsóknaverkefna.

Inga hlaut Cand. odont. próf í tannlækningum frá Tannlæknaskólann í Árósum í Danmörku árið 1981. Hún nam samfélagstannlækingar við Nordiska Hälsovårdshögskolan í Gautaborg árið 1983. Inga hlaut meistarapróf í lýðheilsu M.P.H í stefnumörkum og stjórnun í heilsuvernd með áherslu á tannvernd við University of North Carolina árið 1995. Hún hlaut doktorspróf við Háskóla Íslands árið 2005 og fjallaði doktorsverkefni Ingu um tannheilsu og lífsstíl íslenskra unglinga. Inga var fyrst kvenna til þess að hljóta prófessorsstöðu við Tannlæknadeild Háskóla Íslands og jafnframt fyrst kvenna til að gegna stöðu forseta við deildarinnar.

Heimasíða 20. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnunnar

Fylgja ráðstefnunni á Facebook

Inga B. Árnadóttir, prófessor við Tannlæknadeild, mun m.a. fjalla um áhrif lífsstílsdrykkja á tannheilsu í opnum fyrirlestri fyrir almenning þann 2. júní kl. 12:00-12:30. Fyrirlesturinn er hluti af dagskrá 20. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnunnar.

Nokkuð súr? Áhrif lífsstílsdrykkja á tannheilsu