Ónæmissvar gegn SARS-CoV-2, meðferð og vernd gegn COVID-19

Á netinu
Ónæmisfélag Íslands og Háskóli Íslands standa fyrir fræðslufundi degi ónæmisfræðinnar, 29. apríl, þar sem kórónuveiran og COVID-19-sjúkdómurinn verða í brennidepli. Viðburðurinn, sem stendur frá 16.30-17.30, verður í beinni útsendingu.
Erindi flytja:
Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, yfirlæknir á Landspítala og forseti Norrænu ónæmissamtakanna - Vírusvarnir, of mikið af því góða?
Ingileif Jónsdóttir, prófessor við Læknadeild og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu
- Bólusetningar gegn COVID-19, hvaða gagn er að þeim?
Fundarstjóri er Stefanía P. Bjarnarson, dósent við Læknadeild og formaður Ónæmisfélags Íslands.
Ónæmisfélag Íslands og Háskóli Íslands standa fyrir fræðslufundi degi ónæmisfræðinnar, 29. apríl þar sem kórónuveiran og COVID-19-sjúkdómurinn verða í brennidepli. Viðburðurinn, sem stendur frá 16.30-17.30, verður í beinni útsendingu.
