Strokkvartettinn Siggi í beinu streymi á Háskólatónleikum

Í beinu streymi
Strokkvartettinn Siggi slær botninn í Háskólatónleikaröðina þennan veturinn með tónleikum á Litla-Torgi Háskólatorgs föstudaginn 30. apríl kl. 12.15. Tónleikarnir verða í beinu streymi í ljósi samkomutakmarkana.
Háskólatónleikaröðin hóf göngu sína með nýjum áherslum síðasta haust og hafa þau Mikael Máni, Dymbrá, Umbra, Kælan mikla, Sóley og Krummi öll troðið upp við góðan orðstír. Tónleikunum hefur öllum verið streymt með glæsibrag og má nálgast upptökur hér.
Lokatónleikar þessa starfsárs verða svo haldnir föstudaginn 30. apríl næstkomandi. Þá kemur Strokkvartettinn Siggi fram á Litla-Torgi Háskólans, sama stað og Sóley nýtti undir sína töfra í febrúar. Þá reið jarðskjálfti yfir í miðju setti, svo falleg var tónlistin, og því aldrei að vita hvað gerist nú.
Strokkvartettinn Siggi var stofnaður árið 2012 og hefur síðan þá verið áberandi í tónleikahaldi og leikið Beethoven og Shostakovich auk fjölda nýrra verka sem samin hafa verið sérstaklega fyrir Sigga. Listamenn Sigga eru virkir sem einleikarar og kammerspilarar og leika í Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur. Strokkvartettinn skipa Una Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir á fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu og Sigurður Bjarki Gunnarsson á selló.
Kvartettinn hefur reynt sig við fjölbreyttustu verkefni, lék t.d. fimm tíma langt verk eftir Morton Feldman í Mengi árið 2018, gaf út lofaða plötu árið 2019 (South of the Circle á Sono Luminus) og lék inn á margverðlaunaða Philip Glass plötu Víkings Ólafssonar. Atli Heimir Sveinsson, Jóhann Jóhannsson, Björk, S.L.Á.T.U.R. og bedroom community eru á meðal þeirra fjölmargra sem hafa fengið að njóta óskoraðra hæfileika þessa umtalaða kvartetts.
Tónleikarnir fara fram föstudaginn 30. apríl eins og fyrr segir og hefjast leikar kl. 12.15. Tónleikunum verður streymt líkt og verið hefur með alla tónleika þessa starfsárs. Einnig er hægt er að njóta tónleikana síðar í upptökuformi. Allir velkomnir og aðgangur gjaldfrjáls.
Um tónleikaröðina
Um áratugabil, og raunar í hálfa öld, hefur það verið hefð í Háskóla Íslands að standa fyrir svofelldum Háskólatónleikum. Um mánaðarlega viðburði er að ræða, á haust- og vorönn, og fara þeir fram í byggingum háskólans.
Nýr umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen og segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“ á þessum komandi vetri. Fólk geti búist við tónlist sem tilheyri alls kyns geirum, svosem poppi/rokki, djass, klassík og bara því sem álitlegt þykir hverju sinni.
Strokkvartettinn Siggi slær botninn í Háskólatónleikaröðina þennan veturinn með tónleikum á Litla-Torgi Háskólatorgs föstudaginn 30. apríl kl. 12.15. Tónleikarnir verða í beinu streymi í ljósi samkomutakmarkana.
