Í fjarska norðursins. Ísland og Grænland: Viðhorfasaga í þúsund ár

Á netinu
Sumarliði R. Ísleifsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands, fjallar um verðlaunabók sína „Í fjarska norðursins. Ísland og Grænland: Viðhorfasaga í þúsund ár“ á netfundi í fundaröð Rannsóknaseturs um norðurslóðir, Vísindi á norðurslóðum, miðvikudaginn 14. apríl. kl. 12-13.
Í bókinni, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis, birtast rannsóknir Sumarliða á viðhorfum umheimsins til Íslands og Grænlands frá öndverðu til samtímans. Í erindinu eru helstu þræðir dregnir saman, greint frá hvernig viðhorf hafa mótast og hvers vegna og hvernig íbúar umræddra landa tóku sjálfir í vaxandi mæli að móta viðhorfin og loks hvenær og hvers vegna viðhorf til landanna tveggja aðgreindust og runnu saman að nýju undir lok 20. aldar og á þessari öld.
Sumarliði er sagnfræðingur að mennt. hann lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands með hagfræði sem aukagrein. Hann stundaði jafnframt framhaldsnám í Danmörku um þriggja ára skeið en lauk doktorsnámi árið 2014 þegar hann varði doktorsritgerð sína, „Tvær eyjar á jaðrinum. Ímyndir Íslands og Grænlands frá miðöldum til miðrar 19. aldar“.
Erindinu verður streymt á meðfylgjandi slóð: https://eu01web.zoom.us/j/64686366215 See Less