Skip to main content

Faraldur í upplýsingaóreiðu

Faraldur í upplýsingaóreiðu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. mars 2021 13:00 til 15:00
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Opinn fundur fimmtudaginn 18. mars kl. 13:00 - 15:00 í Norræna húsinu.

Ágreiningur um viðbrögð við Covid-19-faraldrinum hefur varpað ljósi á áskoranir sem upplýsingaóreiða felur í sér fyrir frjálslynd lýðræðisríki. Fyrir tilstilli samfélagsmiðla er auðveldara en nokkru sinni fyrr að breiða út misvísandi og rangar upplýsingar. Á sama tíma hafa popúlískir stjórnmálamenn grafið undan trausti á vísindum og virðingu fyrir grundvallarstaðreyndum, sem hefur aftur leitt til þess að almenningur ber minna traust til rótgróinna fjölmiðlastofnana en áður. Í slíku umhverfi er erfiðara en ella að stýra viðbrögðum og upplýsingagjöf með skilvirkum hætti og hefur heimsfaraldurinn því verið viss áminning um mikilvægi vísindarannsókna og trausts til þeirra stofnana sem miðla niðurstöðum slíkra rannsókna. 

Vegna fjöldatakmarkana biðjum öll þau sem vilja taka þátt í viðburðinum í Norræna húsinu um að skrá sig.  

Einnig verður hægt að horfa á beint streymi frá fundinum.

Opnunarorð: Maximilian Conrad, prófessor, Háskóli Íslands 

Aðalfyrirlesari: Saul Newman, prófessor, Goldsmiths háskóli í London 

Umræður: 
Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar á Íslandi 
Guðmundur Hálfdánarson, prófessor, Háskóli Íslands 
Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor, Háskóli Íslands 

Fundarstjóri: Auður Örlygsdóttir, verkefnastjóri Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands 

Þessi opna málstofa er hluti af evrópska Jean Monnet Networks samstarfsverkefninu Post-Truth Politics, Nationalism and the (De-)Legitimation of European Integration sem Höfði friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands leiðir í samstarfi við fimm aðra háskóla í Evrópu og Norður-Ameríku.   

Í ljósi aðstæðna verður boðið upp á beint streymi frá málstofunni en jafnframt verður tekið á móti gestum í Norræna húsinu í takt við ríkjandi sóttvarnarreglur og aðstæður í samfélaginu. Skráningu má nálgast hér.

Opinn fundur fimmtudaginn 18. mars kl. 13.00 - 15.00 í Norræna húsinu. Nauðsynlegt að skrá sig.

Faraldur í upplýsingaóreiðu