Skip to main content

Eyjavistkerfi norðurslóða: Áhrif loftslagsbreytinga og beitar

Eyjavistkerfi norðurslóða: Áhrif loftslagsbreytinga og beitar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. mars 2021 12:00 til 13:00
Hvar 

Á netinu

Nánar 
Viðburðurinn er á netinu

Ingibjörg Svala Jónsdóttir hefur verið prófessor í vistfræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands frá árinu 2009. Hún starfaði lengi við háskólana í Lundi og Gautaborg og síðar í alls tíu ár við Háskólasetrið á Svalbarða og um þriggja ára skeið var hún ráðin að Landbúnaðarháskóla Íslands til að leiða uppbyggingu Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (nú hluti af neti UNESCO). Hún rannsakar landvistkerfi norðurslóða með áherslu á samspil plantna og dýra og hvernig túndruvistkerfi bregðast við loftslagsbreytingum.

Loftslaghlýnun er tvöfalt hraðari yfir norðlægum slóðum en annarsstaðar í heiminum. Í köldum jarðvegi túndruvistkerfa er að finna gífurlegt forðabúr lífrænna efna sem gæti losnað úr læðingi á formi gróðuhúsalofttegunda við loftslagshlýnun og magnað þar með hnattræna hlýnun enn frekar. Það er því mikilvægt að skilja hvernig vistkerfin bregðast við hlýnun. Viðbrögð þeirra eru hins vegar ekki alltaf fyrirsjánleg því þar eiga sér stað flókin samspil ólífrænna (m.a. loftslag) og lírfænna þátta (lífverur). Eyjar markast af því að þar er að finna hlutfallsega fáar tegundir lífvera og getur það sett mark sitt á starfsemi vistkerfanna og því er nauðsynlegt að rannsaka þau sérstaklega. Í erindinu mun Ingibjörg fjalla um rannsóknir sínar á gróðri túndrunnar á tveimur eyjum, Íslandi og Svalbarða, og hvernig beit mótar viðbrögð þeirra við loftslagbreytingum.

Viðburðurinn var upphaflega haldinn í fyrra í byrjun COVID-19-faraldursins, áður en byrjað var að streyma viðburðum. Því hefur verið ákveðið að halda viðburðinn að nýju - nú í netstreymi.

Hlekk á viðburðinn má finna hér 

Í erindinu mun Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, fjalla um rannsóknir sínar á gróðri túndrunnar á tveimur eyjum, Íslandi og Svalbarða, og hvernig beit mótar viðbrögð þeirra við loftslagbreytingum.

Eyjavistkerfi norðurslóða: Áhrif loftslagsbreytinga og beitar