Skip to main content

Gagnrýni á dómstóla: Nauðsynleg eða skaðleg?

Gagnrýni á dómstóla: Nauðsynleg eða skaðleg?  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. mars 2021 12:00 til 13:30
Hvar 

Viðburður fer fram á Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Gagnrýnin umræða um einstaka dóma og hlutverk dómstóla er nauðsynleg í lýðræðissamfélögum. En hvar liggja mörk eðlilegrar gagnrýni? Hvenær grefur gagnrýni undan lögmæti dómstóla, ekki síst alþjóðlegra dómstóla sem reiða sig á stuðning þeirra ríkja sem standa að dómstólnum? Hvenær gengur gagnrýni of nærri einstökum dómurum?

Við þessum spurningum og fleiri verður leitað svara á rafrænu málþingi Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands kl. 12:00 þann 3. mars. 2021. Málþingið fer fram í gegnum Zoom.

Frummælendur eru:

1. Dr. Pola Cebulak, lektor við Háskólann í Amsterdam: "Backlash against international courts: explaining the forms and patterns of resistance to international courts"

2. Dr. Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands: „Gagnrýni á Mannréttindadómstól Evrópu í tengslum við Landsréttarmálið“

3. Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari og lektor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík: „Mörk gagnrýni á landsdómstóla í ljósi dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu“

Fundarstjóri: Brynhildur Flóvenz, stjórnarformaður Mannréttindastofnunar HÍ og dósent við Lagadeild Háskóla Íslands.

Frummælendur tala í 15 mínútur hver og fyrsta erindið fer fram á ensku. Að framsögum loknum gefst kostur á umræðum.

Gagnrýnin umræða um einstaka dóma og hlutverk dómstóla er nauðsynleg í lýðræðissamfélögum. En hvar liggja mörk eðlilegrar gagnrýni? Hvenær grefur gagnrýni undan lögmæti dómstóla, ekki síst alþjóðlegra dómstóla sem reiða sig á stuðning þeirra ríkja sem standa að dómstólnum? Hvenær gengur gagnrýni of nærri einstökum dómurum? Við þessum spurningum og fleiri verður leitað svara á rafrænu málþingi Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands kl. 12:00 þann 3. mars. 2021. Málþingið fer fram í gegnum Zoom.

Gagnrýni á dómstóla: Nauðsynleg eða skaðleg?