Skip to main content

Fjarmenntabúðir fyrir skólafólk um fjarkennslu og upplýsingatækni

Fjarmenntabúðir fyrir skólafólk um fjarkennslu og upplýsingatækni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. febrúar 2021 15:00 til 17:00
Hvar 

Zoom - sjá vefslóðir í mismunandi stofur í dagskránni

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fjarmenntabúðir fyrir skólafólk á framhalds- og háskólastigi og í fullorðinsfræðslu 
um fjarkennslu og upplýsingatækni 
fimmtudaginn 18. febrúar 2021 kl. 15-16:30+ 

Vertu með í að styðja og læra með kollegum þínum hvar sem er á landinu! 
Kennarar um allt land hafa staðið frammi fyrir því á undanförnum misserum að þurfa að færa kennslu sína að miklu eða öllu leyti yfir á netið.  Menntabúðirnar eru ætlaðar sem óformlegur vettvangur fyrir skólafólk til þess að miðla tilraunum og lausnum og læra hvert af öðru á netinu í rauntíma.

Áhersla er á fjar- og netkennslu og notkun upplýsingatækni í námi og samskiptum á framhalds- og háskólastigi og í fullorðinsfræðslu.

Skólafólk er hvatt til þess að skrá framlag í dagskrá menntabúðanna strax. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Framlög eru 25 mínútur og gætu verið sýnikennsla, kynningar eða umræður um ákveðið afmarkað vandamál, viðfangsefni eða lausn. Til dæmis má ræða app, þjónustu, verkefni eða aðferð sem reynst hefur vel með nemendum og vilji er fyrir að deila – eða skapa umræðu um. 

Þátttaka er öllum opin án skráningar – aðeins þarf að opna dagskrána 18. febrúar og velja sér vefstofu að vild. Þátttakendur geta tekið þátt í allri dagskránni eða hluta hennar. Fylgstu með á Fésbókarviðburði menntabúðanna: https://www.facebook.com/events/322806052371540/

Menntabúðirnar fara fram með Zoom fjarfundabúnaði (Zoom-leiðbeiningar hér). 

Nánari upplýsingar: Sólveig JakobsdóttirSólveig Zophoníasdóttir og Hróbjartur Árnason 

Að menntabúðunum stendur starfsfólk við Háskóla Íslands (Menntavísindasvið og Kennslumiðstöð) og Háskólann á Akureyri í samvinnu við aðila hjá Kennarasamband Íslands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. 

Menntabúðirnar eru hluti af verkefninu “Fjarmenntabúðir: Stuðningur háskóla við skólastarf með stafrænni tækni” sem er styrkt af Háskóla Íslands