Menntun fyrir alla í alþjóðlegu samhengi - Samanburður á menntakerfi Þýskalands og Íslands

Menntaráðstefna um hagnýta reynslu og leiðir í framkvæmd stefnunnar um menntun fyrir alla.
Að ráðstefnunni standa fræðimenn og fagfólk í háskólanum í Leipzig í Þýskalandi og á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Fulltrúar Háskóla Íslands í skipulagi ráðstefnunnar eru Hafdís Guðjónsdóttir,prófessor, Jóhanna Karlsdóttir, lektor og Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, aðjúnkt og doktorsnemi.
Fyrirlesarar eru bæði frá Þýskalandi og Íslandi.
Á ráðstefnunni verða haldin erindi um reynslu, leiðir og þróun í löndunum tveimur ásamt Japan. Einnig gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í umræðum í hópum.
Ráðstefnan fer fram dagana 19. og 20. febrúar á Zoom. Hún mun fara fram á ensku.
Dagskrá ráðstefunnar og hlekkur á Zoom-slóð er að finna á vef ráðstefnunnar: www.inside-projekt.de (inside-projekt.de)
Ráðstefnan fer fram dagana 19. og 20. febrúar á Zoom. Hún mun fara fram á ensku.
