Áfangamat Þóru Bjargar Sigurðardóttur við Menntavísindasvið

Zoom
17. febrúar nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Þóru Bjargar Sigurðardóttur doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:
Teaching ethics through literature
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Þóra Björg rannsóknarskýrslu sína kl. 15.00– 16:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Þóru Bjargar. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.
Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Þóru Bjargar Sigurðardóttur, þeim: dr. Ólafi Páli Jónssyni prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og dr. Atla Vilhelm Harðarsyni dósent við Menntavísindasvið, utanaðkomandi prófdómurum, dr. Ármanni Jakobssyni prófessor við Hugvísindasvið og dr. Erin Spring, lektor við Háskólann í Calgary. Dr. Hafdís Guðjónsdóttir prófessor við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og dr. Steingerður Ólafsdóttir er ritari.
Zoom hlekkur: https://eu01web.zoom.us/j/64687392081
Meeting ID 646 8739 2081