Skip to main content

Kennslukannanir við Háskóla Íslands. Vettvangur áreitni?

Kennslukannanir við Háskóla Íslands. Vettvangur áreitni? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. febrúar 2021 14:00 til 15:00
Hvar 

Á netinu

Nánar 
Hlekk má finna á Facebook síðu viðburðar

Margrét Sigrún Sigurðardóttir, dósent, Anna Helga Jónsdóttir, dósent, Daði Már Kristófersson, prófessor og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor, flytja erindi um kennslukannanir við Háskóla Íslands.

Hlekk má finna á Facebook síðu viðburðar

Erlendar rannsóknir hafa sýnt að kynjamunur getur verið í niðurstöðum kennslukannana og í þeim tilvikum eru það konur sem fá lægri einkunn að meðaltali en karlkyns samkennarar þeirra. Auk þess eru vísbendingar um að þær eru líklegri til að fá óviðeigandi kynferðislegar athugasemdir við opnum spurningum.

Í málstofunni munum við kynna megindlega rannsókn á kennslukönnun Háskóla Íslands árin 2013-2017 og eigindlega greiningu á svörum við opnum spurningum í könnuninni skólaárið 2016-2017.

Rannsókn okkar sýnir að þó að tilvik kynferðislegrar áreitni séu fá og að munur á einkunnum karla og kvenna í kennslukönnuninni sé óverulegur, en þó til staðar, þá er eðlismunur á þeim athugasemdum sem karlkyns og kvenkyns kennarar fá í opnum svörum.