Miðbiksmat í eðlisfræði - Andrea Proto

Titill: Aflísog rafeinda í súrefnis rýmdarafhleðslu
Doktorsefni: Andrea Proto
Doktorsnefnd: Dr. Jón Tómas Guðmundsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Viðar Guðmundsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Ágúst Valfells, prófessor og forseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík
Ágrip
Beitt var particle-in-cell Monte Carlo aðferðinni til að skoða eiginleika og uppruna rafsviðs og aflísogs rafeinda innan rafgasbols í súrefnis rýmdarafhleðslu. Við sýnum að aflísogs ferli rafeinda er háð gas þrýstingi og fjarlægð milli rafskauta. Eiginleikar og uppruni rafsviðsins voru kannaðir með því að ákvarða vægi Boltzmann jöfnunnar. Veigamesta framlagið til aflísogs rafeindanna stafar af þrýstingsliðunum, ambipolar þættinum og stigli rafeindahitastigsins, ásamt með ohmska liðnum.