Hvað kemur út úr kófinu? Nýbreytni og hagnýt amboð í fjarkennslu meistaranema.

Hvenær
18. nóvember 2020 15:00 til 16:00
Hvar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Fastanefnd um meistaranám stendur fyrir fræðslu- og umræðufundi á netinu. Hér er slóð á Zoom-fundinn.
Kennslan undanfarið hefur verið krefjandi og fundurinn býður upp á möguleg svör við áskorunum kennara og nemenda.
Fjallað verður um reynslu meistaranema af fjarnámi og kennslu og um leiðir til að gera fjarnám áhugavert og lifandi.
- Meistaranemarnir Sóley Arna Friðriksdóttir og Kolbrún Lára Kjartansdóttir segja frá upplifun sinni af fjarnámi á síðustu mánuðum
- Hróbjartur Árnason og Bettý Kristjánsdóttir kynna amboð (Mural og Mindmeister) sem stuðla að samvinnu og kynna hópvinnuaðferðir til að virkja nemendur.
Allir áhugasamir velkomnir.