Hvernig mælum við jafnrétti? - Jafnréttisskorkort fyrir íslenskt atvinnulíf

Baráttan fyrir jafnri stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi er orðin löng en henni er þó hvergi nærri lokið. En hvernig miðar og hver er staðan? Er von til þess að jöfnuður náist fljótlega?
Í nýjustu útgáfu Tímarits um viðskipti og efnahagsmál birtist greinin Jafnréttisskorkort fyrir íslenskt atvinnulíf eftir þau Snjólf Ólafsson, Láru Jóhannsdóttur, Sigríði Finnbogadóttur, Erlu S. Kristjánsdóttur, Þóru H. Christiansen og Þórunni Sigurðardóttur.
Í rannsókninni var skilgreint safn af mælikvörðum – jafnréttisskorkort – sem til samans gefa miklar upplýsingar um stöðu kynjanna núna og þróun síðustu tveggja áratuga. Snjólfur og Sigríður munu fara yfir niðurstöður greinarinnar á opnum hádegisfyrirlestri á vegum Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands auk þess sem þau og fleiri höfundar sitja fyrir svörum.
Baráttan fyrir jafnri stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi er orðin löng en henni er þó hvergi nærri lokið. En hvernig miðar og hver er staðan? Er von til þess að jöfnuður náist fljótlega? Í nýjustu útgáfu Tímarits um viðskipti og efnahagsmál birtist greinin Jafnréttisskorkort fyrir íslenskt atvinnulíf eftir þau Snjólf Ólafsson, Láru Jóhannsdóttur, Sigríði Finnbogadóttur, Erlu S. Kristjánsdóttur, Þóru H. Christiansen og Þórunni Sigurðardóttur. Í rannsókninni var skilgreint safn af mælikvörðum – jafnréttisskorkort – sem til samans gefa miklar upplýsingar um stöðu kynjanna núna og þróun síðustu tveggja áratuga. Snjólfur og Sigríður munu fara yfir niðurstöður greinarinnar á opnum hádegisfyrirlestri á vegum Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands auk þess sem þau og fleiri höfundar sitja fyrir svörum. Slóð á fund: https://eu01web.zoom.us/j/64400183336
