En ég var einn

Fyrirlestrarröðin En ég var einn! Sjálfsmynd stráka og kerfið er samstarf Jafnréttisskóla Reykjavíkur, Geðhjálpar og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Strákar og stelpur. Heilinn, geðheilsan, námið.
Tengill á fundinn birtist samdægurs HÉR á heimasíðu ráðstefnunnar Ekki er þörf á forskráningu en gestir eru beðnir um að mæta tímanlega þar sem viðburðurinn tekur aðeins við 250 manns.
Kl. 13:30 - Vefstofan á Google Meet opnar fyrir þátttakendur.
Kl. 14:00 - Vigfús Steinsson býður þátttakendur velkomna og útskýrir fyrirkomulag dagskrár.
Kl. 14:05 - Ársæll Már Arnarsson - Strákarnir okkar
Í erindi sínu fjallar Ársæll um stöðu barna í skólakerfinu og veltir upp spurningum um hvers vegna svo mikill munur er á námsárangri og líðan stelpna og stráka. Ársæll er prófessor og forseti deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda í Háskóla Íslands.
Kl. 14:25 - Spurt og svarað með Ársæli
Kl. 14:40 - Grímur Atlason - Fyrir neðan fossinn
Grímur mun fjalla um stöðu stráka hvað varðar geðheilsu á Íslandi í dag, aukningu á greiningum og lyfjaávísunum auk þess sem hann ræðir um mikilvægi þess að skólakerfið bregðist við á markvissan hátt. Grímur er framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Kl. 15:10 - Spurt og svarað með Grími
Kl. 15:20 - Gina Rippon - The Gendered Brain: Boys will be Boys?
Er munur á heila stráka og heila stelpna? Er það líffræðilegur munur eða stjórnast hann af umhverfinu?
How firmly can we link gender inequalities to sex differences in the brain? Boys will be boys. Is it just a question of the playing out of a biological script, with boy brains taking their owners down pre-determined routes? Or should we also be paying attention to the social stage, and noting the brain-changing effects of gender stereotypes? This brief talk aims to help you understand more about brain myths and brain matters in the controversial world of sex and the brain. Gina Rippon is Emeritus Professor of Cognitive Neuroimaging at the Aston Brain Centre in Birmingham.
15:50 - Ráðstefnudegi lýkur
Í þessari lotu mun Ársæll Arnarsson prófessor ræða um stráka og skólakerfið, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar mun ræða um greiningar, lyfjaávísanir, líðan og skólakerfið og Dr. Gina Rippon mun fjalla um heilarannsóknir og hversu mikið vægi uppeldi og umhverfi hefur á þróun og þroska heilans. Hún ræðir m.a. um hvort það sé mælanlegur munur á heilum stelpna og stráka og hvaða áhrif kynjuð skilaboð og staðalmyndir hafa á taugatengingar í heila barna.
