Skip to main content

UP TO START! – stefnumót við mentora í nýsköpunar- og frumkvöðlageiranum

UP TO START! – stefnumót við mentora í nýsköpunar- og frumkvöðlageiranum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. október 2020 15:30 til 17:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Viðburðurinn er á netinu.

Ert þú með snilldarhugmynd að vöru eða verkefni? Til að hjálpa þér að hefja þína ferð sem frumkvöðull býður nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands þér að taka þátt í viðburðinum UP TO START! sem fram fer mánudaginn 5. október kl. 15.30-17.30 á netinu.

Þar gefst nemendum Háskóla Íslands kostur á hlýða á fyrirlestra og eiga samtal við mentora sem hafa víðtæka reynslu af íslensku nýsköpunar- og frumkvöðlasenunni, sér að kostnaðarlausu. Nemendur geta nýtt sér þetta frábæra tækifæri til að ræða viðskiptahugmynd sína og fá ráð um hvernig best sé að stofna fyrirtæki í kringum hana, nálgast fjármagn, finna rétt fólk með sér í teymi og hvaða stuðning Háskóli Íslands veitir í þessum málum. Ef þú ert með hugmynd sem þú vilt gera að veruleika en veist ekki hvar er best að byrja, þá er þetta viðburðurinn fyrir þig.

Dagskráin hefst á þremur erindum þar sem gestir fá innsýn í:
- Hvernig er að stíga sín fyrstu skref sem frumkvöðull með Sunnu Höllu Einarsdóttur, CFO hjá Icelandic Startups.
- Þann stuðning sem Háskóli Íslands býður upp á í tengslum við nýsköpunar- og frumkvöðlastarf með Ólöfu Vigdísi Ragnarsdóttur, verkefnastjóra nýsköpunar við vísinda- og nýsköpunarsvið Háskóla Íslands.
- Reynslu Kjartans Þórssonar, fyrrverandi nemanda við HÍ, lækni og sigurvegara Nordic Health Hackathon, sem mun fjalla um vegferð sína í sprotaheiminum.

Eftir fyrirlestrana, upp úr kl. 16.30, gefst gestum svo tækifæri til að leita ráða hjá leiðbeinendum/mentorum frá hinum ýmsu fyrirtækjum og spyrja þau spjörunum úr. Mentorasamtöl sem þessi eru fastur liður í viðskiptahröðlum og nýsköpunarkeppnum. Hins vegar þarf að skrá sig sérstaklega í mentorasamtölin. Skráningin er ekki bindandi og þjónar fyrst og fremst þeim tilgangi að áætla fjölda mentora fyrir viðburðinn.

Vegna COVID-19-faraldursins verður viðburðurinn allur á netinu og munu mentorasamtöl fara fram í gegnum fjarfundarbúnað.

Ert þú með snilldarhugmynd að vöru eða verkefni? Til að hjálpa þér að hefja þína ferð sem frumkvöðull býður nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands þér að taka þátt í viðburðinum UP TO START! sem fram fer mánudaginn 5. október kl. 15.30-17.30 á netinu.

UP TO START! – stefnumót við mentora í nýsköpunar- og frumkvöðlageiranum